Aðstandendur Kvennafrísins 2018 svara ummælum Sigríði Andersen um kynbundin launamun og ítreka mikilvægi þess að honum sé honum sé eytt í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í dag.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, sagði í færslu á Facebook-síðu sinni í gær, sem vakið hefur mikla athygli, að ályktun um launamun kynjanna sem fjallað var um í gær af tilefni kvennafrídagsins sé beinlínis röng. Hún segir að launamunur kynjanna sé í raun um 5 prósent samkvæmt tölum Hagstofunnar ef tekið er tillit til ýmissa þátta á borð við vinnu, vinnutíma, menntun, reynslu eða mannaforráða. „Þessi kynbundni munur gefur þó ekki tilefni til að álykta nokkuð um kynbundið misrétti. Launakannanir eru of takmarkaðar í eðli sínu til þess að slá nokkru föstu um það,“ segir dómsmálaráðherra
Aðstandendur Kvennafrísins hafna því alfarið að ályktanir þeirra sem dregnar eru fram af útreikningum Hagstofu Íslands séu rangar líkt og Sigríður heldur fram og svara: „ Eins og kemur skýrt fram á vefnum kvennafri.is reiknum við út meðalatvinnutekjur kvenna og er aðferðafræðin rakin nánar þar. Það er rétt hjá ráðherranum að við tökum ekki tillit til vinnutíma, menntunar, reynslu, mannaforráða og fleiri breyta. Við teljum enga ástæðu til að leiðrétta fyrir þessum þáttum enda teljum við þá ekki málefnaleg rök fyrir kynbundnum launamun.“
Í yfirlýsingunni kemur fram að kerfisbundið ójafnrétti felst ekki aðeins í óútskýrða launamuninum heldur mun fleiri þáttum eins og vinnutíma, menntun, starfi, atvinnugrein, barneignum og hlutfalli kvenna í stjórnunarstöðum. Tekið er fram að þótt þessir þættir útskýri hluta af launamuninum þá réttlæta þeir hann ekki heldur vekja upp fleiri spurningar hvers vegna má vera að hlutur kynjanna sé svo ójafn í þessum þáttum.
Krefjast jafnra kjara
„Staðreynd málsins er þessi. Meðatvinnutekjur kvenna eru 26% lægri en meðalatvinnutekjur karla. Ástæðurnar fyrir því eru meðal annars þær að þær taka lengra fæðingarorlof, þær þurfa frekar að vera frá vinnu vegna veikinda barna, þær þurfa að vera lengur frá vinnu til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, þær veljast sjaldnar í vel launaðar stjórnunarstöður og þær tilheyra svokölluðum kvennastéttum þar sem störfin eru ekki metin af verðleikum þegar kemur að launum og öðrum starfskjörum. Til viðbótar við þetta eru lífeyrissjóðsréttindi þeirra sömuleiðis lægri en karlmanna.“ segir í yfirlýsingunni.
Í yfirlýsingunni segir enn fremur: „Ólíkt dómsmálaráðherra þá teljum við þessar ástæður ekki skiljanlegar og ásættanlegar. Eins og fram kemur í yfirlýsingu gríðarfjölmennra samstöðufunda kvenna á Arnarhóli og í fjölda bæjarfélaga um allt land í gær krefjumst við þess að fæðingarorlof sé lengt, að kvennastéttir hætti að vera láglaunastéttir, að atvinnulífið verði fjölskylduvænna og að konur taki jafnan þátt í stjórnunarstöðum landsins. Með öðrum orðum þá krefjumst við jafnra kjara. Það væri óskandi að dómsmálaráðherra gæti tekið undir þá kröfu með öðrum orðum.“