Icelandair ber sjálft ábyrgð á að veita nægjanlegar upplýsingar

Páll Harðarson segir að það hafi ekki komið til greina að stöðva viðskipti með bréf í Icelandair lengur en gert var. Það sé staðlað verklag að fara yfir öll viðskipti sem eigi sér stað í aðdraganda mikilla tíðinda.

Icelandair og WOW air
Auglýsing

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, segir að það sé á ábyrgð Icelandair að veita nægj­an­lega góðar upp­lýs­ingar um kaup félags­ins á WOW air. Sé inn­herj­a­upp­lýs­ingum haldið eft­ir, líkt og heim­ild er til við ákveðnar kring­um­stæð­ur, þá verði að tryggja að trún­aðar sé gætt og koma í veg fyrir að þær ber­ist ann­að.

Þetta er á meðal þess sem hann segir í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­­son í sjón­­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut. Stiklu úr þætt­inum er hægt að sjá hér að neð­­an.

Til­kynnt var um kaup Icelandair á WOW air í byrjun nóv­em­ber. Við það hækk­aði hluta­bréfa­verð í Icelandair um tugi pró­senta á nokkrum klukku­tím­um. Miklar vanga­veltur hafa verið um það á mark­aði hvort að inn­herj­a­upp­lýs­ingar um að kaupin væru fyr­ir­huguð hefðu lekið út áður en að til­kynnt var um þau auk þess sem upp­lýs­ingar sem veittar voru í til­kynn­ingu til Kaup­hallar voru að mörgu leyti tak­mark­aðar og erfitt að átta sig til að mynda á þeim fyr­ir­vörum sem settir voru fyrir kaup­un­um.

Auglýsing
Páll segir að það sé staðlað verk­lag að fara yfir alla upp­lýs­inga­gjöf og öll við­skipti í aðdrag­anda mik­illa tíð­inda á mark­aði, eins og vænt yfir­taka Icelandair á WOW air var sann­ar­lega. Það sé hins vegar fyrst og fremst Fjár­mála­eft­ir­lits­ins ð kanna hvort að ein­hverjar inn­herj­a­upp­lýs­ingar hafi lekið út. Það vakti athygli að eft­ir­litið sendi út dreifi­bréf til ráðu­neyta og til­tek­inna stofn­ana þar sem athygli er vakin á gild­andi lögum og reglum sem gilda um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga hjá stjórn­völdum nokkrum dögum eftir að yfir­takan á WOW air var til­kynnt. Til­gangur dreifi­bréfs­ins var að ítreka „mik­il­vægi þess að stjórn­völd séu með­vituð um skyldur sínar sam­kvæmt lögum og regl­um, komi til þess að þau með­höndli inn­herj­a­upp­lýs­ing­ar.“

Páll sagði að það væri full ástæða til að skerpa á þessum atriðum og að mik­il­vægt væri að menn fari vel með þessar upp­lýs­ing­ar. Hins vegar verði að horfa á að það hafi verið margt í gangi hjá Icelandair í aðdrag­anda til­kynn­ing­ar­innar sem snerti ekki WOW air. „Það er upp­gjör, það er til­kynn­ing um sölu­ferli hót­el­anna svo koma flutn­ings­tölur og fleira. Við auð­vitað beinum því til félags­ins sjálfs að veita allar þær upp­lýs­ingar sem það getur veitt.“

Páll segir að það hafi aldrei komið til greina að stöðva við­skiptin með bréf í lengri tíma en gert var þann dag sem til­kynnt var um vænta yfir­töku. „Það er algjört prinsipp hjá okkur að stöðva við­skipti í eins stuttan tíma og hægt er. Það er ein­fald­lega svo mikil vernd í því fyrir þá sem eiga hluta­bréf í skráðum félögum að vita af því að þeir geti ávallt selt sinn hlut. Þetta er svo mik­il­vægur hluti af rétt­indum hlut­hafa. Að okkar mati var engin for­senda fyrir því.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent