Stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði hafa stofnað átakshóp til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði, verkefni hópsins snúa að því að auka framboð á íbúðum og að öðrum aðgerðum með það að markmiði að bæta húsnæðisstöðuna hér á landi. Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðsins komu saman á tólfta samráðsfund sínum síðasta föstudag. Forsætisráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra kynntu þessa sameiginlega tillögu á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Kynna heildstæða lausn í janúar
Í tilkynningu Stjórnaráðsins segir að hópurinn eigi að hafa samráð við aðra starfshópa um húsnæðismál og að hópnum sé skylt að kynna heildstæða lausn á viðfangsefnum sínum fyrir stjórnvöldum og heildarsamtökum á vinnumarkaði eigi síðar en 20. janúar 2019. Íbúðalánasjóður mun vinna með hópnum ásamt öðrum sérfræðingum.
„Nú er mikilvægt að við tökum höndum saman og finnum raunhæfar lausnir og aðgerðir sem geta haft áhrif sem allra fyrst. Í mínum huga er mikilvægast að við göngum nú öll í takt og finnum úrræði sem gagnast sem allra flestum en ljóst er að öruggt húsnæði er einn af grundvallarþáttum í því velferðarsamfélagi sem við viljum byggja upp hér á landi. Enda þótt hópurinn sé átakshópur þá vona ég að þær tillögur sem hópurinn skilar muni ekki aðeins leysa stöðuna til skemmri tíma heldur einnig hafa áhrif á framtíðarfyrirkomulag húsnæðismála hér á landi“, sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Þörf á 9.500 fleiri íbúðum
Á árunum 2013-2017 fjölgaði íbúðum hér á landi um 6.500 en að mati Íbúðalánasjóðs hefði íbúðum þurft að fjölga mun meira, eða um hátt í 16.000 til þess að mæta að fullu þeirri þörf fyrir íbúðir sem skapaðist á tímabilinu vegna fólksfjölgunar, breytinga á aldurssamsetningu og fjölgunar íbúða í skammtímaleigu.
Í tilkynningu Stjórnaráðsins segir að uppsafnaður skortur á íbúðum endurspeglast í miklum verðhækkunum á íbúða- og leigumarkaði og bráðum vanda þeirra sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði segir í tilkynningu stjórnarráðsins. Því þarf að fjölga íbúðum næstu árum til að vinna á þeim vanda og í samkvæmt tilkynningunni er mikilvægt að sú uppbygging verði í samræmi við þarfir landsmanna.
Formenn hópsins verða Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Íbúðalánasjóðs, og Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Mun Anna Guðmunda Ingvarsdóttir taka sér leyfi frá störfum og sinna þessu verkefni af fullum þunga. Auk þeirra verða í nefndinni þrír fulltrúar frá ríki, tveir frá sveitarfélögum og þrír frá heildarsamtökum á vinnumarkaði.