Það er ekki nóg að á Íslandi ríki lagalegt og – næstum því – tölfræðilegt jafnrétti sem mælist efst á alþjóðlegum listum. Jafnrétti felst ekki síst í því að fólk beri virðingu hvert fyrir öðru, óháð kyni, kynhneigð, fötlun og öðrum þeim breytum sem hafa áhrif á fólk, hvort sem það er í opinberum störfum eða í einkalífinu.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Kvenréttindafélags Íslands sem send var út í dag. Tilefnið er drykkjukvöld sex þingmanna úr Miðflokknum og Flokki fólksins í síðustu viku þar sem þeir létu falla niðrandi ummæli um aðra þingmenn, konur, fatlaða og samkynhneigða.
„Við búum í samfélagi sem breytist ört í átt til jafnréttis. #MeToo byltingin hefur eflt kraft okkar til að takast á við ójafnrétti á öllum sviðum samfélagsins og í kjölfar hennar hafa öll viðmið um samþykkta hegðun færst til. Við líðum ekki lengur að konur, og raunar allt fólk, sé smánað í skjóli valdamismunar,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá segir að í samtali þingmannanna hafi komið fram djúp kvenfyrirlitning, fatlað og hinsegin fólk verið smánað og niðurlægt og kynþáttafordómar afhjúpaðir. Þó hafi verið þarna á meðal einstaklingar sem í trúnaðarstörfum sínum hafi staðið í fylkingarbrjósti sem kyndilberar jafnréttis á landsvísu og á heimsvísu.
„Siðareglur alþingismanna kveða skýrt á um að þingmenn skuli „ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni“. Auk þess skulu þeir „leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heilbrigt starfsumhverfi innan þings sem utan og hvarvetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kynferðislegri eða kynbundinni áreitni, einelti eða annarri vanvirðandi framkomu.“ Þá skulu þeir „í öllu hátterni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virðingu“ og „ekki sýna öðrum þingmönnum, starfsmönnum þingsins eða gestum kynferðislega eða kynbundna áreitni, leggja þá í einelti eða koma fram við þá á vanvirðandi hátt.“
Ljóst er að þingmennirnir sex hafa brotið gegn öllu þessu og við blasir að málefni þeirra hljóta að fara í þann farveg sem kveðið er á um í siðareglunum. Stjórn Kvenréttindafélagsins krefst þess að þingmennirnir axli ábyrgð, horfist í augu við að þeir eru rúnir trausti og segi tafarlaust af sér þingmennsku.
Í upphafi annarar aldar fullveldisins brýnir Kvenréttindafélag Íslands Alþingi og önnur stjórnvöld, kjósendur og þjóðina alla að kvika ekki frá baráttunni fyrir jafnara og sanngjarnara þjóðfélagi þar sem ekki hallar á neinn. Sköpum saman Ísland þar sem jafnrétti ríkir, fyrir okkur öll,“ segir í yfirlýsingunni.