Bláa lónið er verðmetið á um 50 milljarða króna í því samkomulagi sem eignarhaldsfélagið Kólfur, sem er í meirihlutaeigu Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins, gerði nýlega við framtakssjóðinn Horn II um kaup á 49,45 prósenta hlut sjóðsins í Hvatningu. Hvatning heldur 39,1 prósents hlut í Bláa lóninu og er því óbeinn eignarhlutur sjóðsins rúmlega 19,3 prósent. Frá þessu er greint í Markaðinum, fylgiriti um viðskipti og efnahagsmál.
Talsvert hærra verðmat en þegar Blackstone gerðu tilboð
Miðað við kauptilboð Kólfs er Bláa lónið metið á talsvert hærra verði en þegar bandaríska fjárfestingafélagið Blacstone ætlaði að kaupa 30 prósent hlut í lóninu af HS Orku sumarið 2017. Tilboð Blackstone hljóðaði þá upp á 95 milljónir evra, jafnvirði 13,3 milljarða króna á núverandi gengi, sem jafngildir því að markaðsvirði Bláa lónsins sé rúmlega 44 milljarðar króna.
Ekkert varð hins vegar af sölunni eftir að stjórn Jarðvarma, samlagshlutafélags í eigu íslenskra lífeyrissjóða sem fer með þriðjungshlut í HS Orku, ákvað að beita neitunarvaldi sínu, á grundvelli hluthafasamkomulags um minnihlutavernd, og hafna tilboði Blackstone.
Hermann Þórisson, framkvæmdastjóri Horns II, sem er í rekstri Landsbréfa, sagðist í samtali við Markaðinn ekkert geta tjáð sig um kaupverðið og vísaði til trúnaðar.
Horn II mun renna sitt skeið á næsta ári
Stærstu hluthafar Horns II, sem eru einkum íslenskir lífeyrissjóðir, hafa kauprétt á sama gengi sem undir var í viðskiptunum til loka janúar. Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur mikill meirihluti hluthafa Horns II í hyggju að nýta sér kaupréttinn og þannig vera áfram óbeinir hluthafar í Bláa lóninu. Það á hins vegar ekki við um Landsbankann sem er þriðji stærsti hluthafi Horns II . Grímur Sæmundsson mun á næstunni halda fjárfestakynningar á Bláa lóninu fyrir hluthafa Horns II samkvæmt heimildum Markaðarins
Í ársreikningi Horns II fyrir 2017 var hlutur sjóðsins í Hvatningu metinn á ríflega 8 milljarða króna en miðað við núverandi kauptilboð Kólfs þá er virði hlutarins í kringum 9,5 milljarða króna. Í umfjöllun Markaðarins segir að tilurð viðskiptanna má rekja til þess að líftími Horns II, sem stofnaður var 2013, muni renna sitt skeið á næsta ári. Stærstu hluthafar sjóðsins eru Lífeyrissjóður verslunarmanna og Gildi lífeyrissjóður, hvor um sig með 18,17 prósenta eignarhlut. Aðrir stórir hluthafar eru meðal annars Landsbankinn með 7,66 prósenta hlut, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda með 5,85 prósent og þá nemur eignarhlutur tryggingafélagsins VÍS 5,38 prósentum.
Hagnaður Bláa lónsins í fyrra var 31 milljón evra
Bláa lónið hefur vaxið hratt á undanförnum árum. Í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins, eftir skatta, 31 milljón evra og hækkaði um þriðjung á milli ára. Tekjur fyrirtækisins námu rúmlega 102 milljónum evra, jafnvirði 14 milljarða króna, á síðasta ári og jukust um 25 milljónir evra á milli ára. EBITDA fyrirtækisins jókst um liðlega 39 prósent í fyrra og nam rúmlega 39 milljónum evra.
Fyrir utan Hvatningu og HS Orku eru helstu hluthafar Bláa lónsins eignarhaldsfélagið Keila með 9,2 prósenta hlut en það er í meirihlutaeigu Hvatningar. Aðrir hluthafar í Keilu eru meðal annars Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og varamaður í stjórn Bláa lónsins. Þá eiga Helgi Magnússon, stjórnarformaður Bláa lónsins, og Sigurður Arngrímsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Morgan Stanley í London, einnig hvor um sig um 6,2 prósenta hlut í fyrirtækinu.