Þrettán nemendafélög um land allt lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar til Rannsóknasjóðs í fjárlögum 2019. Í fjárlögunum er fyrirhugað að skera niður fjámagn til Rannsóknasjóðs um 147 milljónir króna niðurskurði. Í yfirlýsingu frá nemendafélögunum segir að þetta sé mikið högg fyrir íslenskt fræðasamfélag sem reiðir sig í stórum stíl á þennan sjóð. Þau lýsa yfir sérstökum áhyggjum af stöðu doktorsnema og nýrannsakanda, en sá hópur byggir afkomu sína nær algjörlega á úthlutunum úr samkeppnissjóðum.
„Í stóra samhengi fjárlaga hljómar þetta kannski ekki sem mikil fjárhæð en fyrir þá sem reiða sig á sjóðinn er um gríðarlegar fjárhæðir að ræða. Sé talan sett í samhengi við árslaun þá kemur í ljós að með þessari fjárhæð væri hægt að fjármagna tæp þrjátíu árslaun doktorsnema eða tuttugu og ein árslaun nýdoktora.“ segir í yfirlýsingunni.
Skora á þingmenn að leiðrétta framlög til menntamála
Nemendafélögin taka undir það sem stendur í fjármálaáæltun ríkistjórnarinnar fyrir árin 2019 til 2023.„Fjármögnun doktorsnema er ótrygg og nýliðun akademískra starfsmanna víða ófullnægjandi. Þetta skapar hættu á að sú nýja þekking sem gjarnan fylgir ungum vísindamönnum skili sér illa inn í háskólana og að það dragi úr tengslum við erlent fræðasamfélag.“ segir í áætlun ríkistjórnarinnar.
Í yfirlýsingu nemendafélaganna segir að á seinustu árum hefur árangurshlutfall úr Rannsóknasjóð lækkað verulega, úr 29,6 prósentum árið 2015 í 18,4 prósent í ár, jafnvel þó að ekki hafi verið skorið niður til sjóðsins að ráði. Því fyllyrða þau að ef af fyrirhuguðum niðurskurði verði þá sé ljóst að árangurshlutfallið mun lækka verulega.
„Við teljum ljóst að fyrirhugaður niðurskurður muni hafa gríðarleg áhrif á doktorsnám í landinu þar sem brottfall mun að öllum líkindum aukast og nýliðun minnka. Möguleikar nýrannsakenda munu að sama skapi snarminnka sem mun valda atgervisflótta og veikja vísindarannsóknir og háskólana til langframa. Við skorum því á þingmenn að leiðrétta framlög til menntamála svo að unnt sé að veita nægileg framlögtil rannsókna og vísinda við háskóla og fræðastofnanir á Íslandi.“ segir að lokum í yfirlýsingu.
Undir yfirlýsinguna rita:
- Fedon – félag doktorsnema og nýrannsakenda við Háskóla Íslands
- Stúdentaráð Háskóla Íslands
- LÍS – Landssamtök íslenskra stúdenta
- SÍNE – Samband íslenskra námsmanna erlendis
- RUPA – félag doktorsnema við Háskólann í Reykjavík
- Arkímedes – félag doktorsnema við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
- DNR/HVS – doktorsnemaráð Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
- Félag doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands
- Hugdok – félag doktorsnema og nýrannsakenda við Hugvísindasvið Háskóla Íslands
- Seigla: Félag doktorsnema á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands
- Nemendafélag Háskólans á Bifröst
- Stúdentafélag Háskólans á Akureyri
- Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík