Vextir óverðtryggðra lána hækkað um allt að 1,25 prósentustig á árinu

Hjá bönkum landsins hafa fastir vextir óverðtryggðra lána hækkað mest allra vaxta. Frá janúar 2018 hafa fastir vextir óverðtryggðra lána hækkað um 1,25 prósentustig hjá Íslandsbanka og eru nú hæstir vaxta eða 7,40 prósent í desember.

7DM_9563_raw_2114.JPG
Auglýsing

Vextir óverð­tryggðra lána hafa hækkað mest allra vaxta hjá bönkum lands­ins, ­Arion ­banka, Lands­bank­anum og Íslands­banka árið 2018. Vextir óverð­tryggðra íbúða­lána, bæði fastir og breyti­leg­ir, eru nú komnir yfir 6 pró­sent hjá öllum bönk­un­um. Mest hafa fastir vextir óverð­tryggðra lána hækkað en hjá Íslands­banka hækk­uðu þeir vextir um 20 pró­sent á árinu 2018 eða um 1,25 pró­sentu­stig og um 1 pró­sentu­stig hjá Arion banka. Fastir vextir óverð­tryggðra lána í Íslands­banka eru nú hæstu íbúða­lána­vextir láns­ins eða 7,40 pró­sent. Þetta má sjá í sam­an­tekt Aur­bjarg­ar um vaxta­þróun íbúða­lána hjá bönk­unum árið 2018. Tekin voru saman grunn­lán íbúða­lána, óverð­tryggt, verð­tryggt, breyti­legir vextir og fastir vextir í 5 ár.

Vext­ir ó­verð­tryggðra lána allt að 7,40 pró­sent

Í heild­ina hafa íbúða­lána­vextir hækkað mest hjá ­Arion ­Banka á árinu 2018 en vextir óverð­tryggðra lána, bæði fastir og breyti­leg­ir, hækk­uðu um 1 pró­sentu­stig hjá bank­anum á árinu. Vext­ir verð­tryggðra lána hækk­uðu einnig hjá ­Arion ­banka á árinu, um 0,24 pró­sentu­stig og 0,17 pró­sentu­stig

Mest hafa fastir vextir á óverð­tryggðum lánum hækkað hjá Íslands­banka en þeir vextir hafa hækkað um 1,25 pró­sentu­stig frá jan­úar 2018 og voru 7,40 pró­sent þann 16. des­em­ber 2018. Fastir vextir óverð­tryggðra lána hjá ­Arion ­banka hækk­uðu um 1 pró­sentu­stig á árinu og fóru úr 5,95 pró­sentum í 6,95 pró­sent. Hjá Lands­bank­anum hækk­uðu sömu vextir um 0,75 pró­sentu­stig og eru nú 6,80 pró­sent.

Tölur frá Aurbjörgu

Breyti­legir vextir óverð­tryggðra lána hafa hækkað mest hjá Arion banka eða um 1 pró­sentu­stig frá jan­úar 2018. Arion er með hæstu breyti­legu vext­ina á óverð­tryggðum lánum eða 6,60 pró­sent þann 16.des­em­ber 2018. Hjá Lands­bank­anum og Íslands­banka hafa sömu vextir hækkað um 0,25 pró­sentu­stig og eru nú 6 pró­sent hjá báðum bönkunum.

Auglýsing


Vextir verð­tryggðra lána ekki hækkað jafn mik­ið.

Vextir hafa hækkað minna þegar kemur að verð­tryggðum lánum hjá bönk­un­um. Ef bornir eru saman vextir í  jan­úar 2018 og vextir þann 16. des­em­ber 2018 má sjá að vextir verð­tryggðra lána hafa hækkað mest hjá Arion banka. Breyti­legir vextir verð­tryggðra lána hafa hækkað um 0,24 pró­sentu­stig hjá ­Arion ­Banka og er nú 3,89. Hjá hinum bönk­unum hafa sömu vextir aftur á mót­i ­lækkað eilít­ið, breyti­legir vextir verð­tryggðra lána hafa lækkað um 0,05 pró­sentu­stig hjá Íslands­banka og 0,1 pró­sentu­stig hjá Lands­bank­an­um, eru nú 3,6 pró­sent og 3,55 pró­sent.

Verð­tryggð lán með föstum vöxtum hafa hækkað um 0,17 pró­sentu­stig frá jan­úar 2018 hjá ­Arion ­banka og vext­irnir komnir upp í 3,97 pró­sent. Fastir vextir verð­tryggðra lána hafa hins veg­ar ­lækkað eilítið frá jan­úar 2018 hjá Íslands­banka um 0,1 pró­sentu­stig og Lands­bank­anum um 0,2 pró­senti­stig.

Mikil aukn­ing í óverð­tryggðum íbúða­lánum

Í mán­að­­ar­­skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs um hús­næð­is­mark­að­inn sem birt var í síð­ustu viku kom fram að mikil aukn­ing hefur verið í óverð­­tryggðum lánum á nýliðnum haust­mán­uð­u­m. Í októ­ber­mán­uði námu ný íbúða­lán, að frá­­­dregnum umfram- og upp­­greiðslum eldri lána, alls um 14,3 millj­­örðum króna en þar af voru óverð­­tryggð lán að fjár­­hæð 13,4 millj­­örðum króna. 

Mynd: ÍbúðalánasjóðurÓverð­­tryggð lán voru því um 94 pró­­sent af hreinum nýjum íbúða­lánum fjár­­­mála­­stofn­ana til heim­il­anna í októ­ber. Í heild­ina eru íbúða­lán heim­ila lands­ins um 79 pró­sent verð­tryggð á móti 21 pró­sent óverð­tryggðra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent