VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness munu vera í samstarfi í yfirstandandi kjarasamningaviðræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR en samstarfið var samþykkt á fundi stjórnar VR í gærkvöld.
Formenn VR, Eflingar og Verkalýðsfélags Akraness hafa nú þegar hist og hefur ákvörðun verið tekin um að vísa viðræðum félaganna við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.
Í yfirlýsingu sem Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar – stéttarfélags og Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA sendu frá sér vegna málsins í dag segir að þau telji að viðræður síðustu vikna við Samtök atvinnulífsins hafi verið árangurslausar og afstöðu stjórnvalda skýra vísbendingu um að þau hyggist ekkert gera til að liðka fyrir viðræðum.
„Lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði eru 300 þúsund krónur á mánuði samkvæmt kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins. Húsnæðiskreppa og tilfærsla skattbyrði frá þeim ríku yfir á þá efnaminni gerir það að verkum að ekki er hægt að lifa af þessum launum. Efnahagsuppsveifla síðustu ára hefur ekki skilað láglaunafólki ábata og löngu tímabært að snúa við þeirri öfugþróun,“ segir í yfirlýsingunni.
Jafnframt kemur fram að stéttarfélög verslunarfólks og almenns launafólks standi sameinuð í þeirri kröfu að dagvinnulaun dugi fyrir mannsæmandi lífi. Krafa þeirra sé um krónutöluhækkanir sem leiði til sanngjarnari skiptingar kökunnar, ekki prósentuhækkanir og launaskrið.
„Samtök atvinnulífsins hafa svarað kröfum okkar með gagnkröfu um uppstokkun á vinnutíma og breytingum á grundvallarréttindum launafólks - réttindum sem náðust með áralangri baráttu vinnandi fólks. Tólf tíma vinnudagur var raunveruleiki hér á landi á árum áður. Slíkt verður aldrei liðið aftur á íslenskum vinnumarkaði. Skilgreiningar á vinnutíma er ávinningur af kjarabaráttu síðustu alda sem aldrei verður fórnað fyrir nafnlaunahækkanir sem geta brunnið upp í verðbólgu.
Við gerum kröfu um róttækar breytingar á núverandi kerfi, sanngjarnar launaleiðréttingar og boðlegt líf en fáum lítil sem engin svör. Þeir sem vilja tryggja sanngirni og réttlæti á vinnumarkaði eru sakaðir um ábyrgðarleysi og jafnvel öfgar. Eini kosturinn sem býðst vinnandi fólki er kyrrstöðusamningar,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá segir að enn og aftur sé til þess ætlast að láglaunafólk á Íslandi sitji eftir á meðan þeir launahæstu skammti sjálfum sér tugprósenta launahækkanir án þess að blikna. Verkalýðshreyfingin standi sterk og muni berjast til að ná fram kröfum fólksins um mannsæmandi líf.
„Við undirrituð teljum að sögulegt tækifæri sé fólgið í breiðri samstöðu stéttarfélaga almenns verkafólks og verslunarfólks um krónutöluhækkanir og hækkun lægstu launa.
Við höfum því tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum þeirra stéttarfélaga sem við veitum forystu við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara,“ segir í yfirlýsingunni.