Wizz air keypti lendingarleyfi WOW air á Gatwick

Lendingarleyfi WOW air á Gatwick flugvellinum í London fóru til tveggja flugfélaga, Wizz air og easyJet. Salan á leyfunum fór fram sama dag og tilkynnt var um mögulega fjárfestingu Indigo Partners í WOW air en Wizz air er í eigu Indigo Partners.

Wow air
Auglýsing

Breska flug­fé­lagið easyJet og hið ung­verska flug­fé­lag Wizz air keyptu lend­ing­ar­leyfi WOW air á Gatwick flug­velli í London. Rétt fyrir jól stað­festu stjórn­endur WOW air að félagið hefði selt lend­ing­ar­leyfi sín á Gatwick en hvorki kaup­verð né kaup­andi var gefið upp í til­­kynn­ing­unni þar sem um trún­­að­­ar­­sam­komu­lag er að ræða. Nýupp­færðar upp­lýs­ingar um lend­ing­ar­leyfi í Bret­landi sýna hins vegar að það voru flug­fé­lögin EasyJet og Wizz air sem keyptu lend­ing­ar­leyfi WOW air. Túrist­i.is greindi fyrst frá þessu.

Wizz air er í eigu Indigo Partners

Flug­fé­lagið Wizz air er að stórum hluta í eigu félags­ins Indigo Partners sem nú er í við­ræðum við WOW air um kaup á félag­inu. Hvert kaup­verðið var fyrir lend­ing­ar­leyfin kemur ekki fram í breskum gögnum um lend­ing­ar­leyfi. Í gögn­unum kemur þó fram að easyJet tekur við morg­un­tímum WOW air en Wizz air tekur við kvöld­tímunum á Gatwick sam­kvæmt umfjöllun Túrista. 

Sala á leyf­unum til Wizz Air fór fram 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og til­kynnt var um að að flug­fé­lagið Indigo Partners ætl­aði mögu­lega að fjár­festa í WOW air. En dag­inn áður hafði Icelandair hætt við að festa kaup á WOW air. ­Salan á leyf­unum til easyJet fór fram 5. des­em­ber. 

Auglýsing

Íslenskir fjöl­miðlar greindu frá því skömmu fyrir síð­­­ustu mán­aða­­mót að ein fljót­­leg­asta leiðin fyrir WOW air til að verða sér úti um laust fé væri að selja lend­ing­­ar­­stæði sín á Gatwick flug­­velli. Þau stæði voru með þeim verð­­mæt­­ari í eigu WOW air. WOW air mun hætta að fljúga til Gatwick frá 31. mars næst­kom­andi og eftir það fljúga ein­­göngu um Stan­­sted flug­­­völl í borg­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent