Verðmiðinn á Siggi's skyr var að lágmarki 40 milljarðar

Fyrirtækið The Icelandic Milk and Skyr Corporation, sem var stofnað af Sigurði Kjartani Hilmarssyni árið 2006, var selt til franska mjólkurrisans Lactalis í byrjun síðasta árs, fyrir að lágmarki 40 milljarða króna.

Sigurður Kjartan Hilmarsson, stofnandi The Icelandic Milk and Skyr Corporation.
Sigurður Kjartan Hilmarsson, stofnandi The Icelandic Milk and Skyr Corporation.
Auglýsing

Fyr­ir­tæk­ið T­he Iceland­ic Milk and ­Skyr Cor­poration, sem stofnað var af Sig­urði Kjart­ani Hilm­ars­syni árið 2006, var selt til franska mjólk­ur­risans Lact­alis í byrjun síð­asta árs. Fyr­ir­tæk­ið var í um 75 pró­senta eigu Sig­urð­ar, ætt­ingja hans og vina. Kaup­verðið var ekki gefið upp á þeim tíma vegna trún­aðar á milli kaup­anda og selj­anda. Í Mark­aðnum í dag er greint frá því að kaup­verðið hafi verið að lág­marki 370 millj­ónir dala eða um 40 millj­arð­ar­ króna miðað við þáver­andi gengi.

Millj­arða­við­skipti

Sig­urður Kjartan Hilm­ars­son stofn­aði fyr­ir­tækið árið 2006 og byggði upp­ ­fyr­ir­tæk­ið frá fyrstu skyr­blöndu. Áhuga á fyr­ir­tæk­inu óx mjög á síð­ustu árum og ­fór svo að lokum að Lact­alis keypt­i. Lact­alis er alþjóð­legur risi með árlegar tekjur upp á tæp­lega 17 millj­arða evra, eða sem nemur rúm­lega 2.100 millj­örðum króna. Banda­ríski fjár­fest­inga­bank­inn JP Morgan ­leiddi sölu­ferlið og kom fram í umfjöll­un CN­BC í aðdrag­anda söl­unn­ar, í októ­ber, að gert væri ráð fyrir að sölu­tekjur vegna Sigg­i’s ­Skyr yrðu um 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala árið 2018 eða sem nemur um 22 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar má nefna að heild­ar­sölu­tekjur MS - vegna allra vara fyr­ir­tæk­is­ins - á árinu 2016, námu 28 millj­örðum króna.

Hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins, sem ber nafn­ið T­he Iceland­ic Milk and ­Skyr Cor­poration, voru fyrir söl­una að mestu Siggi sjálfur og vinir hans og vanda­menn. Sviss­neski mjólk­ur­vöru­fram­leið­and­inn Emn­i Group átti 22 pró­sent hlut en hann kom fyrst inn í hlut­hafa­hóp­inn um mitt ár 2012. Nákvæm hlut­föll voru ekki verið gefin upp við söl­una. 

Auglýsing

Í umfjöllun Mark­að­ar­ins segir að í upp­gjöri  Emmi Group ­fyrir fyrri helm­ing síð­asta árs kemur fram að fram­leið­and­inn hafi bók­fært hjá sér hagnað upp á 80,9 millj­ónir dala við sölu á öllum 22 pró­senta hlut sínum í skyr­fyr­ir­tæk­inu. Eftir skatta nam sölu­hagn­að­ur­inn 58,9 millj­ónum dala. Emmi Group ­fór með líkt greint er frá hér fyrir ofan með 22 pró­senta hlut í skyr­fyr­ir­tæk­inu fyrir söl­una til­ Lact­alis og var þá eini fag­fjár­festir­inn í hlut­hafa­hópn­um. Ekki liggur fyrir hvert virði eign­ar­hlut­ar­ins var í bókum Emmi Group ­fyrir söl­una til­ Lact­al­is.

Marg­föld­uðu fjár­fest­ing­una

Ingi­mundur Sveins­son arki­tekt og fjöl­skylda voru á meðal stærstu hlut­hafa T­he Iceland­ic Milk and ­Skyr Cor­poration ­með um fimmt­ungs­hlut, sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins, og fengu þau því um það bil átta millj­arða króna í sinn hlut við söl­una. Félag í eigu fjöl­skyld­unn­ar, Eld­hrímn­ir, setti fjár­muni í skyr­fyr­ir­tækið á árunum 2006, 2008 og 2013 og var hlutur félags­ins met­inn á kostn­að­ar­verði, 51 milljón króna, í bókum þess í lok árs 2017. 

Að því gefnu að umrædd fjár­hæð, 51 milljón króna, hafi verið eina hluta­fjár­fram­lag fjöl­skyld­unnar til skyr­fyr­ir­tæk­is­ins nam innri ávöxtun fjár­fest­ingar hennar hátt í 80 pró­sentum á ári á árunum 2006 til 2017, sam­kvæmt útreikn­ingum Mark­að­ar­ins.

Siggi og Sveinn Ingimundarson. Mynd úr einkasafni Sigga.Sonur Ingi­mund­ar, Sveinn Ingi­mund­ar­son, var meðal hlut­hafa og hefur verið með Sigga í verk­efn­inu, með einum eða öðrum hætti, frá­ ­upp­hafi. Í við­tali við Kjarn­ann í kjöl­far söl­unnar til­ Lact­alis ­byrjun árs 2018 sagði Sig­urður Kjartan að umbúð­irnar hafi verið „x fact­or­inn“ sem skipti miklu máli fyrir fram­gang og þróun Siggi's Skyr.  Þær voru hann­aðar af ­Sveini.







Eign­ar­hlutur Sig­urðar Kjart­ans nam, eftir því sem Mark­að­ur­inn kemst næst, um 25 pró­sent­u­m. ­Ljóst er að þeir sem lögðu fyr­ir­tæki Sig­urðar til fé, líkt og Emmi, marg­föld­uðu fjár­fest­ingu sína, jafn­vel þannig að þeir fengu hana meira en hund­rað­falt til baka.

Skyr­veldið varð til í eld­hús­inu hjá Sigga

Vöxtur Siggi's skyr hefur verið hraður á und­an­förnum árum og núna fæst skyrið í um 25 þús­und versl­unum í Banda­ríkj­un­um. Í upp­hafi leit þó ekki út fyrir að mikið veldi væri í upp­sigl­ingu en Sig­urður Kjartan sagði frá skyræv­in­týr­inu, sem hófst í New York ­fyrir meir en ára­tug, í við­tali við Kjarn­ann í byrjun árs 2018.

Sig­urður Kjartan lauk MBA ­námi við Col­umbi­a há­skóla í New York árið 2004, hóf störf hjá Deloitte í borg­inni í kjöl­farið en ­sagði upp þegar skyrá­hug­inn kvikn­að­i. Hann byrj­aði á að kynna skyrið sitt á litlu borði með skilti á mark­aði í New York. Sig­urður fór í fjölda ferða á sölu­ráð­stefnur og fundi til að koma vör­unni á fram­færi og sann­færa við­skipta­vini um ágæt­ið. Aðspurður um hvaða fyr­ir­tæki það hafi ver­ið, sem hafi skipt miklu fyrir vör­unar segir Siggi að versl­un­ar­keðjan Whole Foods hafi þar verið mik­il­væg. Að lokum opn­uðu stærstu versl­un­ar­keðjur heims­ins opn­uðu dyrnar fyrir skyr­in­u. 

„Þetta er bara þrot­laus vinna, og það hættir aldrei.“ sagði Sig­urður í við­tal­inu og sagði engan einn galdur vera við þetta verk­efni. „Það tekur tíma að byggja upp tengslin á mark­aði og traust á vörum og sölu­að­ferðum og slíku. Ekk­ert kemur í stað­inn fyrir það að vera á mark­aðnum á fyrstu stig­un­um.“

Vöxtur í kort­un­um 

Þrátt fyrir söl­una á fyr­ir­tæk­inu þá er Sigg­i’s, og vöru­merkin 30 sem undir því eru, í miklum sókn­ar­hug sam­kvæmt Sig­urði. Frá­ ár­inu 2013 hefur skyrið verið sú jógúrt­teg­und ­sem hefur vaxið hvað hrað­ast á Banda­ríkja­mark­aði og er talið að fyr­ir­tækið sé með um það bil tveggja pró­senta mark­aðs­hlut­deild í jógúrt­sölu þar í landi.

Sig­urður seg­ir, í við­tal­inu við Kjarn­ann, lend­ing­una hafa verið góða, eftir tólf ára vinnu. Fjár­festar hafi fengið góða ávöxtun eftir mikla þol­in­mæði og starfs­fólkið geti nú haldið áfram vinnu sinni. Blóð, sviti og kannski ein­hver tár, verða mögu­lega hluti af vaxt­ar­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins, eins og hingað til.

Sigurður Kjartan Hilmarsson Mynd: Elísabet Davíðsdóttir

Hann segir að engin breyt­ing verði á þeirra starf­semi og fyr­ir­tækið muni halda áfram að starfa frá New York. Um 50 starfs­menn eru á skrif­stof­unni í New York, en svo eru mörg hund­ruð und­ir­verk­takar að störfum vítt og breitt, í fram­leiðslu og öðrum verk­efnum sem sinna þarf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent