Sigrún Magnúsdóttir, fyrrum umhverfisráðherra, segir viðbrögð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Gunnars Braga Sveinssonar við Klausturmálinu barnaleg og sömuleiðis fyrrum samherja þeirra úr Framsóknarflokknum. Henni líði illa yfir málinu en segist hún ekki vilja taka afstöðu til þess hvort þingmennirnir eigi að segja af sér. Þetta kemur fram í frétt Rúv en Sigrún var viðmælandi í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.
Sigrún segir að það sé líka erfitt að horfa upp á það að þingmennirnir væru að benda út og suður. „Mér finnst að þeir eigi bara að taka sökina. Þetta var mjög alvarlegur atburður sem gerðist á þessum fræga bar.“
„Manni líður mjög illa yfir þessu öllu saman. Ég vann mest með Sigmundi Davið og dáði hann fyrir margra hluta sakir. Þetta hefur bara verið erfiður tími. Mér finnst þeir of reiðir út í allt og alla,“ segir hún.
Sigrún kveðst minnast orða móður sinnar úr bernsku sem sagði að ef fólk gerði eitthvað af sér þá þýddi ekki að benda á aðra sem hefðu gert það sama. Hver og einn bæri ábyrgð á sinni hegðun. „Mér finnst þetta kannski pínulítið barnalegt, viðbrögðin þeirra,“ segir Sigrún.
Hún bendir á að Alþingi sé ekki venjulegur vinnustaður og að hún vilji ekki taka afstöðu til þess hvort téðir þingmennirnir eigi að segja af sér. Alþingismenn séu kosnir í frjálsum kosningum og hafi kjósendur á bak við sig og á meðan þeir styðji viðkomandi séu þeir enn þingmenn. Hún hafi trú á því að allir geti bætt sig, þannig gangi lífið, að fólk reyni að gera betur í dag en í gær. „En mér finnst að viðbrögðin mættu vera betri og að þeir eigi að hætta því að vera reiðir út í allt og alla og reyna að njóta þess sem gott er og sýna það,“ segir hún.