Ríkisstofnanir greiddu Múlakaffi sjö milljónir fyrir veitingar í desember

Fjöldi ríkisstofnana verslaði veitingar af Múlakaffi í desember í fyrra eða fyrir samanlagt rúmar sjö milljónir. Múlakaffi hefur nú verið starfrækt í yfir 50 ár en tekjur Múlakaffi námu 2,4 milljörðum árið 2017.

Veitingastaðurinn Múlakaffi
Veitingastaðurinn Múlakaffi
Auglýsing

All­margar rík­is­stofn­anir virð­ast hrifnar af veit­inga­staðnum Múla­kaffi en um sautján rík­is­stofn­anir keyptu veit­ingar af Múla­kaffi fyrir sam­an­lagt 7 millj­ónir í des­em­ber á síð­asta ári. Þetta má sjá á vefn­um Opnir reikn­ingar. Á vefnum eru birtir reikn­ingar frá 132 rík­is­stofn­unum í þeim til­gang­i að veita ein­falda og skýra mynd af við­skiptum stofn­ana með því að birta yfir­lit yfir greidda ­reikn­inga. 

Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu versl­aði  fyrir 2,6 millj­ónir í des­em­ber

Á vefnum Opnir reikn­ingar má sjá að í síð­asta mán­uði versl­uðu sautján rík­is­stofn­anir við Múla­kaffi fyrir sam­an­lag­t 7.030.261 krón­ur. Þar á meðal voru Barna­vernd­ar­stofa, Fang­els­is­mála­stofn­un ­rík­is­ins, Land­spít­al­inn, Hér­aðs­sak­sókn­ari og Lög­regl­an.

Alls greiddi Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Múla­kaffi 2.649.982 krónur fyrir veit­ingar í des­em­ber. Toll­stjóri keypti veit­ingar fyrir rúma milljón og Þjóð­skrá fyrir tæpar 800 þús­und krónur í des­em­ber. 

Auglýsing

Múla­kaffi hagn­að­ist um 81,4 millj­ón­ir 

Múla­kaffi hefur verið starf­rækt frá­ ár­inu 1962 og var stofnað af Stef­áni Ólafs­syni. Sonur hans, Jóhannes Stef­áns­son, tók síðar við fyr­ir­tæk­inu af föður sínum árið 1989. Veit­inga­stað­ur­inn Múla­kaffi er stað­settur í Hall­ar­múla en þar fer öll fram­leiðslan fram og starfa þar um 30 manns. Múla­kaffi rekur einnig veislu­þjón­ustu og fyr­ir­tækja­þjón­ustu.

Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffi. Mynd:Skjáskot/RúvHagn­aður Múla­kaffis nam 81,4 millj­ónum króna árið 2017, sam­an­borið við 138,2 millj­ónir árið áður, sam­kvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins. Tekjur félags­ins námu rúmum 2,4 millj­örðum króna og juk­ust um tæp 13 pró­sent milli ára, en rekstr­ar­gjöld 2,3 millj­örð­u­m. 

Laun og launa­tengd gjöld námu 875 millj­ónum og árs­verk voru um 110. Heild­ar­eignir voru tæpur 1,1 millj­arður í lok árs 2017 og eigið fé tæpar 420 millj­ón­ir, 7 pró­sent meira en árið áður. 

Opnir reikn­ing­ar 

Vef­ur­inn Opnir reikn­ing­ar var hleypt af stokk­unum fyrir rúmu ári en þar er hægt að nálg­ast greidda reikn­inga ráðu­neyta og 132 ­rík­is­stofn­ana. Í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu segir að gera megi ráð fyrir að heild­ar­um­fang upp­lýs­inga á vefnum nemi árlega um 45 millj­örðum króna. Und­an­farna mán­uð­i hafa upp­lýs­ingar stórra stofn­ana, svo sem Land­spít­ala, verið birtar á vefn­um.

Vefnum var komið á fót í sam­ræmi við stefnu stjórn­valda um bætt við­mót og aðgengi að stjórn­sýslu. Sam­kvæmt Stjórn­ar­ráð­inu er þeim ætlað að veita ein­falda og skýra mynd af við­skiptum stofn­ana með því að birta yfir­lit yfir greidda reikn­inga. Mark­miðið er að hægt sé að skoða greidda reikn­inga nálægt raun­tíma, en vef­ur­inn er upp­færður mán­að­ar­lega en hægt er að skoða við­skiptin út frá stofn­un­um, birgj­um, teg­und kostn­aðar og tíma­setn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent