Landlæknir vill að kynferðisáreitið verði skoðað strax

Alma Möller landlæknir segir það sláandi tölur að sjö prósent kvenlækna telji sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað á haustmánuðum síðasta árs. Hún segir þetta eitthvað sem þurfi að skoða strax.

Alma Dagbjört Möller, landlæknir.
Alma Dagbjört Möller, landlæknir.
Auglýsing

Alma Dag­björt ­Möller land­læknir segir það slá­andi tölur að sjö pró­sent kven­lækna hafi á haust­mán­uðum síð­asta árs orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað. Hún vísar þar til nið­ur­staðna úr könnun um líðan og starfs­að­­stæður lækna, sem unnin var í októ­ber á síð­­asta ári. „Þetta finnst mér með ólík­indum miðað við alla umræð­una sem er í gangi. Þetta er eitt­hvað sem þarf að skoða strax,“ sagði Alma í sam­tali við Lækna­blað­ið.

Tæp­lega fimm­tíu pró­sent kven­lækna orðið fyrir áreiti

Á lækna­dögum í Hörpu í jan­úar síð­ast­liðnum voru kynntar nið­ur­stöður könn­un­ar um líðan og starfs­að­stæður lækna. Könn­unin var unnin í októ­ber á síð­asta ári en alls bár­ust svör frá 728 lækn­um, eða ríf­lega helm­ingi allra lækna á Ís­landi. Í könn­un­inni kemur fram að tæp­­lega fimm­­tíu pró­­sent kven­kyns lækna hafa orðið fyrir kyn­­ferð­is­­legu áreiti ein­hvern tím­ann á starfsæv­inni. Auk þess sögðu 7 pró­sent kven­lækna að þær höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað á síð­ustu þremur mán­uð­um. Sam­­bæri­­leg­ar ­töl­ur hjá körlu­m voru 1 pró­­sent á síð­­­ustu þremur mán­uðum og 13 pró­­sent yfir starfsæv­ina.  

Auglýsing

Í könn­un­inni kemur einnig fram að 19 pró­sent lækna telji að ein­hver starfs­fé­lagi hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað síð­ustu þrjá mán­uði. Jafn­framt segj­ast 65 pró­sent lækna hafa fundið fyrir streitu­ein­kenn­um, síð­ustu sex mán­uði eða leng­ur. Þarf af 71 pró­sent kvenna og 60 pró­sent karla.

Vitað að það er ekki nógu vel mannað víða í heil­brigð­is­kerf­inu 

Lækna­blaðið spurði Ölmu einnig út í aðrar nið­ur­stöður skýrsl­unn­ar. Alma nefndi að það sem hefði gripið athygli hennar var hve stór hluti af þess­ari mik­il­vægu stétt finni fyrir ein­kennum eins og skertri ein­beit­ingu eða minni, eða um 48 pró­sent lækna. „Bregð­ast þarf við þessu,“ sagði Alma og bætti við þetta hafi svo víð­tæk áhrif, fyrst og fremst á ein­stak­ling­inn en í öðru lagi á vinnu­stað­inn. Hún segir að þetta geti síðan líka komið niður á gæðum með­ferðar og öryggi sjúk­linga ef svona sé kom­ið. 

Í könn­unni kemur jafn­framt fram að 37 ­pró­sent lækna hafi hug­leitt að hætta störfum síð­ustu tólf mán­uði en tveir þriðju lækna töldu álag of mik­ið. „Auð­vitað vitum við að ekki er nógu vel mannað víða í heil­brigð­is­kerf­inu og það þarf að bregð­ast við því, en það þarf líka að skoða aðra þætti sem lúta að vinnu­staðnum sjálf­um,“ sagði Alma benti einnig á að kulnun og streita væri ekki aðeins vandi lækna heldur víða í sam­fé­lag­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent