Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélagsins, hafa undirritað samning þess efnis að Kvenréttindafélagið sinni fræðslu, námskeiðahaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum sem og erlendum vettvangi. Samningurinn gildir frá 15. febrúar 2019 til 15. febrúar 2020 og greiðir forsætisráðuneytið félaginu 10 milljónir króna til að sinna þeim verkefnum. Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að meginmarkmiðið samningsins sé að efla fræðslu fyrir almenning um kynjajafnréttismál í samræmi við markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Þekking er mikilvægasta tækið til að takast á við kynjakerfið
Kvenréttindafélagið á samkvæmt samningnum að sinna hinum ýmsu verkefnum. Auk almennrar fræðslu skal félagið meðal annars halda námskeið fyrir konur, þar á meðal konur af erlendum uppruna, um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og einnig borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, með það að markmiði að auka þátttöku allra kvenna í umræðu og starfi á opinberum vettvangi.
„Kvenréttindafélagið hefur gegnt afar mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi í rúma öld. Við vitum að þekking er mikilvægasta tækið til að takast á við kynjakerfið og þess vegna skiptir miklu að rótgróið félag eins og Kvenréttindafélagið hafi tök á að sinna fræðslu- og upplýsingamálum,“ segir Katrín Jakobsdóttir.
Sjá um útgáfu námsefnis um jafnréttismál
Enn fremur á Kvenréttindafélagið að standa að árlegu kynjaþingi frjálsra félagasamtaka á sviði jafnréttismála. Að auki skal félagið halda árlega samráðsfundi með konum á Alþingi og í sveitarstjórnum um leiðir til að auka þátttöku kvenna og styrkja stöðu þeirra á vettvangi stjórnmálanna. Jafnframt á félagið að halda árlegan samráðsfund með kennurum sem kenna kynja- og jafnréttisfræði á öllum skólastigum í því augnamiði að auka þekkingu og færni kennara á sviði jafnréttismála.
Auk þess á félagið að halda opna fundi, sjá um útgáfu námsefnis um jafnréttismál á rafrænu formi eða prenti og með gerð upplýsingaefnis á íslensku og ensku til birtingar á vefsvæði félagsins.