Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, stígur til hliðar úr formannssæti í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun taka við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt er að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson tekur við sem 1. varaformaður og Líneik Anna Sævarsdóttir verður 2. varaformaður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinstri grænum, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum.
Í henni kemur jafnframt fram að umhverfis- og samgöngunefnd hafi nú verið óstarfhæf um tíma og hafi það truflar störf Alþingis. Ekki hafi verið fundað í nefndinni síðan 29. janúar síðastliðinn. Þingflokksformenn allra flokka hafi leitað leiða til að vinna úr stöðunni, án árangurs.
Samkvæmt samkomulagi um nefndarformennsku minnihlutans kom þessi nefndarformennska í hlut Miðflokksins en fflokkurinn hefur ekki viljað skipta um sinn fulltrúa í nefndinni.
„Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meirihluta á Alþingi er að tryggja að störf þingsins geti gengið eðlilega fyrir sig. Því telja þingmenn stjórnarflokkanna eðlilegt að þetta sé lausnin á meðan samkomulag næst ekki um annað fyrirkomulag.
Það er öllum ljóst að um tímabundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefndarinnar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breytast eru stjórnarflokkarnir reiðubúnir að endurskoða þessa stöðu og telja raunar mikilvægt að slíkt endurmat eigi sér stað fyrir þinglok. Þar sem hér er um tímabundna ráðstöfun að ræða líta stjórnarflokkarnir ekki svo á að taka þurfi upp allt samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu um formennsku í fastanefndum Alþingis að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.