Bjóða hækkun upp á 20.000 krónur á mánuði

Tilboð Samtaka atvinnulífsins til verkalýðsfélaganna hljóðar upp á að laun upp að 600.000 krónum hækki um 20.000 krónur á mánuði hvert ár samningsins.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Auglýsing

Til­boð Sam­taka atvinnu­lífs­ins til verka­lýðs­fé­lag­anna hljóðar upp á að laun upp að 600.000 krónum hækki um 20.000 krónur á mán­uði hvert ár samn­ings­ins. Gert er ráð fyrir þriggja ára samn­ingi og að laun umfram það hækki um 2,5 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Í frétt­inni kemur jafn­framt fram að ekki sé gert ráð fyrir breyt­ingum á vinnu­tíma í til­boð­inu. Full­trúar Efl­ing­ar, VR, Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness og Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur ráði nú ráðum sínum og munu koma með gagntil­boð á samn­inga­fundi sem hófst fyrir hádegi í dag.

Efl­ing leggur fram gagntil­boð

Eins og kom fram í frétt Kjarn­ans í gær­kvöldi þá gerðu Sam­tök atvinn­u­lífs­ins stétt­­ar­­fé­lögum til­­­boð í vik­unni um þriggja ára kjara­­samn­inga að gefnum vissum for­­send­um, en nú hefur samn­inga­­nefnd Efl­ingar sam­­þykkt að leggja fram gagntil­­boð í dag. „Þar er komið til móts við kaup­hækk­­un­­ar­­boð Sam­­taka atvinn­u­lífs­ins, með því skil­yrði að yfir­­völd setji fram og standi við skatt­­kerf­is­breyt­ing­­ar,“ segir í frétt á vef Efl­ing­­ar.

Auglýsing

Stjórn Efl­ingar og samn­inga­­nefnd sam­­þykktu svo ályktun um skatta­­stefnu, þar sem fyrsta skrefið fælist í þeim skatta­til­lögum sem Stefán Ólafs­­son og Ind­riði H. Þor­láks­­son hafa mótað í nýút­­­gef­inni skatta­­skýrslu sinni.

Þar er lagt til að tekju­skattar á 90 pró­sent almenn­ings myndu lækka, en að tekju­hæstu fimm pró­­sentin myndu borga meira. Stjórnin og samn­inga­­nefndin krefj­­ast þess að aðgerð­­irnar sem skýrslan leggur til verði inn­­­leiddar „strax á næstu fjár­­lög­um, og að skatt­­byrði tekju­lægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.“

Fólk orðið óþol­in­mótt

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, fjallar um stöðu mála í kjara­við­ræð­unum í föstu­dag­spistli sín­um. Þar segir hún að vikan hafi ein­kennst af við­ræðum við stjórn­völd og ótelj­andi öðru sam­töl­u­m,  jafnt form­legum sem óform­leg­um, um hvernig hægt yrði að ná sem bestum kjara­bótum í við­ræð­unum sem nú standa yfir. „Næsta vika ber von­andi í skauti sér skýr­ari mynd af stöð­unni og hvers er að vænta bæði frá stjórn­völdum og atvinnu­rek­end­um. Fólk er auð­vitað orðið óþol­in­mótt og það er vel skilj­an­legt, ferlið hefur tekið lengri tíma en ætl­unin var en von­andi verður útkoman þeim mun betri og heild­ar­myndin fyllri.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent