Heimavellir hefja sölu íbúða á Hlíðarenda í mars

Leigufélagið Heimavellir hyggst hefja sölu á 50 af 164 íbúðum á Hlíðarenda í mars. Hinar fara að óbreyttu í útleigu. Framkvæmdastjóri Heimavalla segir að íbúðirnar muni verða á hagstæðara verði en gengur og gerist.

Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla.
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla.
Auglýsing

Leigu­fé­lagið Heima­vellir hyggst hefja sölu nýrra íbúða við Hlíð­ar­enda í mars. Heima­vellir eiga 164 íbúðir á svo­nefndum E-reit en alls verða 178 íbúðir á reitn­um ­full­byggð­ar. Heima­vellir hyggst selja ríf­lega 50 af 164 íbúð­um, hinar fari í útleig­u. Guð­brandur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Heima­valla, segir íbúð­irnar sem fara í sölu munu verða á betra verði en gengur og ger­ist um nýjar íbúðir mið­svæðis í Reykja­vík. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Selja 50 af 164 íbúðum

Guð­brandur seg­ir, í sam­tali við Morg­un­blað­ið, að um 75 íbúðir af 164 í eigu félags­ins á E-reit komi til afhend­ingar í sum­ar. Í heild eru íbúð­irnar á E- reit 178, þær skipt­ast þannig að 164 verði í eigu Heima­valla og 14 í eigu Frosta­skjóls ehf. „Við fáum 164 íbúðir afhentar í tveimur áföng­um. Þann fyrri í sumar og hinn seinni ári síð­ar. Húsin eru byggð eins og tvö­ L ­sem tengj­ast svo sam­an. Hlut­inn sem verður afhentur í sumar snýr að Hring­braut­inni. Þar eru um 75 íbúðir af þessum 164.“

Heima­vellir hygg­ist selja stærri ­í­búð­irn­ar og ætla að selja ríf­lega 50 af þessum 164 íbúð­um. Hinar íbúð­irnar fari í útleig­u. „Flestar íbúð­irnar sem við seljum eru yfir 75 fer­metr­ar; þriggja, fjög­urra og fimm her­bergja. Fjöld­inn getur breyst þegar líður á árið ef við teljum ástæðu til með því að auka hlut­fall íbúða sem fer í sölu eða leig­u,“ segir Guð­brand­ur.

Auglýsing

Hóf­legt verð­lag

Guð­brandur segir reynslu Heima­valla af fyrri verk­efnum benda til meiri áhuga á stærri íbúðum en minni þegar fer­metra­verð er yfir með­al­lagi. Hann segir aftur á móti að ekki sé búið að ákveða sölu­verð. „Þetta verður hóf­lega verð­lagt miðað við það sem er í gangi í dag,“ segir Guð­brand­ur. Hann bendir svo á að allar íbúð­irnar á Hlíð­ar­enda verði með bíla­stæði og rúm­góða geymslu í kjall­ara. Ásamt E-reit verða reit­ir C ­með 162 íbúð­ir, D ­með 142 íbúðir og F ­með sam­tals nærri 500 íbúð­ir. Upp­bygg­ing þeirra er mis­jafn­lega langt á veg kom­in. ­Fyrsta fjöl­býl­is­húsið á Hlíð­ar­enda­svæð­inu, Arn­ar­hlíð 1, er á svo­nefndum B-reit. Það hús var afhent í fyrra­sumar en sam­kvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins eru enn óseldar íbúðir í hús­inu.

Guð­brandur segir marga bíða eftir íbúðum á Hlíð­ar­enda. Þar sé nátt­úra, mið­borgin og stærstu háskól­arnir í göngu­færi. Veð­ur­sæld sé á svæð­inu. Mikið sé lagt í hönnun húsa og eins­leitni brotin upp með ólíkum fram­hlið­um. „Það hafa margir haft sam­band við okk­ur, ekki síst eldra fólk sem hefur búið lengi mið­svæð­is, og spurt um íbúð­irn­ar.“

Taka afstöðu um hvort að félagið verði afskráð úr kaup­höll­inni

­Fyrir liggur til­laga um félagið Heima­vellir verði afskráð úr kaup­höll­inni en hlut­hafar taka afstöðu til til­lög­unnar á aðal­fundi 15. mar­s. Heima­vellir er stærsta leig­u­­­fé­lagið á almennum mark­aði og það eina slíka sem er skráð í Kaup­höll Íslands. Það átti 1.983 íbúðir í lok sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins. Heima­vell­ir til­kynntu til Kaup­hallar Íslands, í nóv­em­ber í fyrra, að félagið hefði ákveðið að selja eignir fyrir alls 17 millj­­arða króna á árunum 2018-2020 í stað tíu millj­­arða króna líkt og fram hafði komið í skrán­ing­­ar­lýs­ingu Heima­valla sem birt var í vor.

Í til­­kynn­ing­unni til kaup­hall­ar­innar kom fram að eigna­­salan muni „hafa þau áhrif á fjár­­hag félags­­ins að fjár­­bind­ing mun minn­ka, svo og tekjur lækka í sam­ræmi við fækkun eigna. Þannig er gert er ráð fyrir að árs­velta 2019 og 2020 verði ríf­­lega 3,5 millj­­arðar króna og áætlað að EBIT­DA hlut­­fall félags­­ins verði 64 pró­­sent á árinu 2019 og hækki í 67-68 pró­­sent á árinu 2020.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent