WIFT, Félag kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi, mótmæla því að aðeins tvær konur eru í níu manna starfshóp mennta- og menningarmálaráðherra sem vinnur að gerð stefnu í kvikmyndamálum. Félagið segir að ráðuneytið hafi haft tækifæri við skipun þessa starfshóp að framkvæma jafnréttisstefnu stjórnvalda en hafi kosið að gera það ekki. Félagið krefst þess að helmingur hópsins sé skipaður konum og að í hópnum sé allavega ein kona sem starfi við kvikmyndagerð. Ályktunin var birt á vefnum Klapptré.
Fyrsta sinn sem stjórnvöld móta heildstæða stefnu í kvikmyndamálum
Í ályktun félagsins segir að mennta- og menningarmálaráðherra hafi skipað verkefnishóp til að vinna að gerð stefnu í kvikmyndamálum sem gilda á frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2030. Þetta sé í fyrsta sinn sem stjórnvöld móta heildstæða stefnu og aðgerðaáætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvikmynda í menningu þjóðarinnar, menntun í kvikmyndagerð á öllum skólastigum, miðlun íslensks kvikmyndaefnis og stuðning við framleiðslu kvikmynda.
Dagur Kári Pétursson, formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra og varaformaður Grímar Jónsson framleiðandi, var skipaður formaður verkefnahópsins. Ásamt honum voru Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri, Einar Karl Birgisson framkvæmdastjóri, Þorgeir Ólafsson sérfræðingur á skrifstofu menningarmála, Baldur Sigmundsson sérfræðingur í atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti og Kristinn Þórðarson, sérfræðingur frá Samtökum iðnaðarins skipaðir í hópinn. Í hópnum eru sitja einnig Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður og Áslaug María Friðriksdóttir formaður Kvikmyndaráðs.
Í ályktun WIFT er það harðlega gagnrýnt að í hópnum séu sjö karlar en aðeins tvær konur. Auk þess starfi þrír af karlmönnunum við fagið, tveir af þeim séu leikstjórar og sá þriðji sé framleiðandi og varaformaður nefndarinnar. Því gagnrýnir félagið það einnig að hvorug þeirra kvenna sem skipaðar voru í nefndina starfi við fagið.
Ráðuneytið kaus að framkvæma ekki jafnréttisstefnu stjórnvalda
Enn fremur segir í ályktuninni að undanfarin ár hafi WIFT unnið mikla og endurgjaldslausa vinnu við gerð stórrar samantektar á annars vegar tölfræði sem afhjúpar kynjahallann í faginu á Íslandi og hins vegar tillögur að aðgerðum í átt að jöfnuði m.a. eftir erlendum fyrirmyndum. Samantektin var unnin í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð og Kvikmyndaráð. Þá hafi félagið boðið mennta- og menningarmálaráðuneytinu fram aðstoð við að móta nýja jafnréttisstefnu tengda kvikmyndum og sjónvarpi, allt frá skólakerfinu til fagsins sjálfs og segir í ályktuninni að því hafi verið vel tekið.
Samantektin var kynnt allsherjar- og menntamálanefnd, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og menntamálaráðherra. Í ályktuninni segir að félaginu hafi verið tjáð að tillögurnar kæmu á góðum tíma þar sem verið væri að skipa nefnd sem ætti að móta framtíðarstefnu og því hafi félagið vonaðist til að fá fulltrúa í nefndina. Í ályktuninni segir að þarna hafi ráðuneytið haft tækifæri til að framkvæma jafnréttisstefnu stjórnvalda en hefði í staðinn kosið að gera það ekki.
Krefjast þess að helmingur hópsins séu konur
Félagið vísar því spurningum sínum til mennta- og menningarmálaráðherra og spyr meðal annars hvers vegna jafnréttisstefnu stjórnvalda var ekki fylgt. „Wift spyr, hvers vegna það var ekki gert? Hver er afstaða nefndarinnar og ráðuneytisins til jafnréttismála í faginu? Hvernig voru fulltrúar í nefndinni valdir og út frá hvaða forsendum?“.
Að lokum krefst félagið að minnsta kosti ein kona sem starfi við kvikmyndagerð sitji í hópnum og að jafnframt sé helmingur hópsins konur.
Í stjórn WIFT sitja Helga Rakel Rafnsdóttir, Dögg Mósesdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Helga Einarsdóttir.