Sér ekki hvernig sérstök smithætta eigi að vera af því að fólk setji upp tjald

Sóttvarnalæknir hefur meiri áhyggjur af hreinlætisaðstöðu víðs vegar um landið fyrir ferðamenn en að flóttafólk hafi safnast saman á Austurvelli.

Flóttafólk mótmælir á Austurvelli. Búið er að taka tjaldið niður.
Flóttafólk mótmælir á Austurvelli. Búið er að taka tjaldið niður.
Auglýsing

„Ég sé ekki alveg hvernig sér­stök smit­hætta á að vera af því að fólk setji upp tjald eða safn­ist saman á Aust­ur­velli.“ Þetta segir Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans vegna skrifa Björns Bjarna­son­ar, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Sótt­varna­læknir hefur meiri áhyggjur af hrein­læt­is­að­stöðu víðs vegar um landið fyrir ferða­menn. Í svar­inu segir Þórólfur að honum finn­ist þetta ekki eiga við um það að fólk safn­ist saman á Aust­ur­velli. Hann seg­ist jafn­framt enga sér­staka skoðun hafa á orðum Björns, hann viti hrein­lega ekki hvort þetta eigi að vera grín.

Björn skrif­aði pistil, sem birt­ist á blogg­síðu hans í gær, sem nefn­ist Fryst­ing eyðir ekki smit­hættu. Þar fjallar hann um við­tal Morg­un­blaðs­ins við Katrínu Andr­és­dóttur sem var í áraraðir hér­aðs­dýra­læknir á Suð­ur­landi um smit­varnir og inn­flutn­ing á mat­væl­um.

Auglýsing

Spyr hvort gætt hafi verið allra nauð­syn­legra hrein­læt­is- og örygg­is­krafna

Björn hefur á orði í pistli sínum að í við­tal­inu við Katrínu hafi komið fram að með fleiri ferða­mönnum auk­ist hættan á því að smit og ónæmar bakt­er­íur ber­ist til lands­ins. Nauð­syn­legt væri að huga að sjúk­dóma­vörnum í því til­liti og gæta fyllsta hrein­læt­is.

Með pistl­inum lætur Björn fylgja tvær myndir eftir Rúnar Gunn­ars­son af mót­mælum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda á Aust­ur­velli. „Þær vekja spurn­ingar um hvort gætt hafi verið allra nauð­syn­legra hrein­læt­is- og örygg­is­krafna með aðkomu réttra stjórn­valda þegar borg­ar­stjóri leyfði að Aust­ur­velli yrði breytt í tjald­stæði og stytt­unni af Jóni Sig­urðs­syni breytt í snaga fyrir mót­mæla­spjöld,“ skrifar Björn.

Hann segir enn­fremur að ákvörðun borg­ar­stjóra og að for­sætis­nefnd alþingis láti sér þetta lynda ýti enn undir hnign­andi virð­ingu borg­ar­stjórnar og þings­ins. „Áður fyrr þótti máli skipta að almenn­ingur kæmi saman á Aust­ur­velli til að láta í ljós vilja sinn til fagn­aðar eða and­mæla. Nú hefur allt yfir­bragð þarna breyst á þann veg að engin leið er að átta sig á hvort eitt­hvað skipti máli sem teng­ist aðgerðum á Aust­ur­velli eða ekki, risið hefur lækkað jafn og þétt. Mynd­irnar segja meira en mörg orð.“

Búin að taka niður tjaldið

Hæl­is­leit­end­urnir eru nú búnir að taka niður tjaldið á Aust­ur­velli. Elín­borg Harpa Önund­ar­dóttir hjá No Border­s-­sam­tök­unum segir í sam­tali við Frétta­blaðið að ástæðan sé heilsu­leysi hæl­is­leit­end­anna, bæði and­legt og lík­am­legt, og mikil útlend­inga­andúð sem þau hafi orðið vör við und­an­farna viku.

„Það voru nokkrir byrj­aðir að veikj­ast þannig að okkur leist ekk­ert á blik­una þó að þeir sjálfir vildu vera áfram. En svo var búið að vera mikið af fólki með útlend­inga­andúð á Aust­ur­velli, sér­stak­lega í gær,“ segir Elín­borg Harpa við Frétta­blað­ið. „Þetta er ekki bara á sam­fé­lags­miðl­um, það er lif­andi fólk á Aust­ur­velli sem kemur og er með dólg. Á hverjum deg­i.“

WORD! PLE­ASE SHARE IT IF YOU WANT THE NEGOTI­ATIONS TO START! “I have just stumbled upon Krist­inn Jóns­son´s stat­u­s...

Posted by Refu­gees in Iceland on Monday, March 18, 2019


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent