Indigo slítur viðræðum við WOW – Viðræður hafnar við Icelandair

Tilkynnt var um það í kvöld að Indigo Partners hafi slitið viðræðum sínum um aðkomu að rekstri WOW air. Viðræður eru hafnar við Icelandair í staðinn.

Icelandair og WOW air
Auglýsing

Indigo Partners hefur slitið við­ræðum sínum við WOW air.  Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem flug­fé­lagið birti á fjár­festa­síðu sinni í kvöld. 

Þar kemur einnig fram að við­ræður séu hafnar milli WOW air og Icelandair Group og að stefnt sé að því að þeim við­ræðum ljúki fyrir næst­kom­andi mánu­dag, 25. mars.

Í til­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi frá sér til Kaup­hallar Íslands í kvöld segir að í kjöl­far til­kynn­ingar frá WOW air um slit við­ræðna við Indigo Partners hafi stjórn Icelandair Group sam­þykkt að hefja við­ræður við WOW air um aðkomu að rekstri félags­ins. „Ef af verður mun aðkoman byggja á sjón­ar­miði sam­keppn­is­réttar um fyr­ir­tæki á fallandi fæti. Við­ræð­urnar fara fram í sam­ráði við stjórn­völd.“

Rík­is­stjórn Íslands sendi frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins í kvöld. Þar sagði: „Stjórn­völd hafa síð­asta árið fylgst með erf­ið­leikum í alþjóð­legum flug­rekstri og sam­keppn­is­stöðu íslenskra flug­fé­laga í því ljósi. Eig­endur WOW air hafa um nokk­urra mán­aða skeið leitað leiða til að tryggja rekstur félags­ins og hafa átt við­ræður við fjár­festa, flug­rek­endur og aðra hag­hafa. Hingað til hafa þær við­ræður ekki skilað þeim árangri sem eig­andi félags­ins stefndi að. ­Rík­is­stjórnin mun áfram fylgj­ast grannt með fram­vind­unni og bindur vonir við að við­ræður félag­anna muni skila far­sælli nið­ur­stöð­u.“

Auglýsing
WOW air hefur verið á barmi falls mán­uðum sam­an, eins og fjallað hefur verið í frétta­­skýr­ingum a vef Kjarn­ans og í öðrum fjöl­mið­l­um, en ljóst er að félagið þarf á veru­­legri fjár­inn­­spýt­ingu að halda til að geta haldið lífi. Kjarn­inn greindi frá því fyrr í kvöld að við­ræður við banda­ríska félagið Indigo Partners, sem staðið hafa yfir í nokkra mán­uði, væru ólík­­­legar til að skila sér í fjár­­­fest­ingu. Það hefur nú verið stað­fest.

Frétta­­blaðið greindi frá því í gær að WOW air hefði óskað eftir rík­­is­á­­byrgð á lána­­fyr­ir­greiðslu frá Arion banka til að tryggja rekst­­ur­inn til skemmri tíma. Rætt hafi verið ófor­m­­lega um hug­­myndir flug­­­fé­lags­ins en afar ósenn­i­­legt er talið að stjórn­­völd muni ljá máls á þeim, að því er fram kom í frétt Frétta­­blaðs­ins. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn frá því að rús­sí­ban­areið WOW air hófst fyrir alvöru síð­sum­ars í fyrra að félagið fer í samn­ings­við­ræður við Icelanda­ir. Fyrstu helg­ina í nóv­em­ber var vandi WOW air orð­inn þannig að ekki var við unað. Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, leit­aði þá til Icelandair og bað þá um að kaupa WOW air. Kaup­samn­ing­ur, með fjöl­mörgum fyr­ir­vörum, var und­ir­rit­aður 5. nóv­em­ber. Upp­gefið kaup­verð, sem átti að greiða með hlutum í Icelanda­ir, var um tveir millj­­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­­kynnt var um kaup­in. Það gat þó lækkað ef áreið­an­­leika­könnun sýndi aðra stöðu en gengið var út frá, sem varð nið­­ur­­stað­­an.

29. nóv­em­ber 2018 var birt til­kynn­ing um að Icelandair væri hætt við kaup­in. Grein­ingar og áreið­an­­leikakann­­anir sem Icelandair hafði látið fram­­kvæma vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa á WOW air höfðu ein­fald­lega leitt í ljós að við­­skiptin stóð­ust ekki þær for­­sendur sem gerðar voru við und­ir­­ritun kaup­­samn­ings­ins.

Helstu for­­sendur kaup­­samn­ings Icelandair WOW air voru þær að sam­komu­lag myndi nást við leig­u­­sala WOW air, að stað­­fest­ing myndi fást á því að for­­gangs­­réttur flug­­­manna myndi ekki eiga við um flug­­­menn WOW air og að sam­komu­lag myndi nást við skulda­bréfa­eig­endur WOW air. Ekk­ert af þessu var leitt til lykta áður en að ákveðið var að hætta við kaup­in. Þá var sér­­stakur fyr­ir­vari um nið­­ur­­stöðu áreið­an­­leika­könn­un­­ar, sem Deloitte og Logs fram­­kvæmdu. Það grunn­­mat liggur fyrir en er trún­­að­­ar­­mál en í kynn­ing­unni segir að „fyrstu nið­­ur­­stöður gáfu til kynna meiri fjár­­þörf en gert var ráð fyrir auk ann­­arra atriða.“

Sama dag og Icelandair hætti við kaupin þá var til­kynnt um að banda­ríska félagið Indigo Partners hefði náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu í WOW air. Þær við­ræður hafa staðið yfir síðan með ýmsum sveifl­um, en er nú form­lega lok­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent