Áreiðanleikakönnun gaf til kynna að fjárþörf WOW air væri meiri

Greiningar og áreiðanleikakannanir sem gerðar voru á stöðu WOW air sýndu að þær forsendur sem gerðar voru í kaupsamningi Icelandair stóðust ekki. Samkomulag við kröfuhafa og leigusala lá ekki fyrir og fjárþörf WOW air var meiri en gert var ráð fyrir.

wow air
Auglýsing

Grein­ingar og áreið­an­leikakann­anir sem Icelandair Group lét fram­kvæma vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa á WOW air leiddu í ljós að við­skiptin stóð­ust ekki þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins. Þetta kemur fram í kynn­ingu sem farið var yfir á hlut­hafa­fundi Icelandair Group í dag, 30. nóv­em­ber, og birt hefur verið í til­kynn­inga­kerfi Kaup­hallar Íslands.

Helstu for­sendur kaup­samn­ings Icelandair Group á WOW air, sem nú hefur verið fallið frá, voru þær að sam­komu­lag myndi nást við leigu­sala WOW air, að stað­fest­ing myndi fá á því að for­gangs­réttur flug­manna myndi ekki eiga við um flug­menn WOW air og að sam­komu­lag myndi nást við skulda­bréfa­eig­endur WOW air. Ekk­ert af þessu var leitt til lykta áður en að ákveðið var að hætta við kaup­in. Þá var sér­stakur fyr­ir­vari um nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­un­ar, sem Deloitte og Logs fram­kvæmdu. Það grunn­mat liggur fyrir en er trún­að­ar­mál en í kynn­ing­unni segir að „fyrstu nið­ur­stöður gáfu til kynna meiri fjár­þörf en gert var ráð fyrir auk ann­arra atriða.“

Auglýsing
Að síð­ustu þurfti sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir kaup­unum og sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelanda­ir. Á þá fyr­ir­vara reyndi eðli­ega ekki þar sem fallið var frá kaup­unum í gær­morg­un.

Við­skiptin stóð­ust ekki for­sendur

Í kynn­ing­unni er einnig farið yfir mögu­leg sam­legð­ar­á­hrif af því að kaupa WOW air. Þau voru sam­þætt­ing leiða­kerfa, aukin hag­ræð­ing í flug­valla­þjón­ustu, umsjón flug­flota og við­haldi og minni yfir­bygg­ing ásamt sam­eig­in­legri sölu- og mark­aðs­starf­semi.

Auk áreið­an­leka­könn­unar voru fram­kvæmdar ýmsar grein­ing­ar. Í þeim meðal ann­ars að fram­kvæma grunn­mat á sjóðs­streymi WOW air til loka maí 2019. Sjóðs­streym­is­á­ætl­unin var fram­kvæmd af Íslands­banka. Sea­bury, sér­hæfður flug­rekstr­ar­ráð­gjafi, útbjó auk þess við­skipta­á­ætlun sam­ein­aðs félags og Kunde&Co fram­kvæmdi vöru­merkja­grein­ingu. Loks greindi Icelandair sjálft flota WOW air, leiða­kerfi og mögu­leg sam­legð­ar­á­hrif.

Sam­an­dregið þá leiddi þessi vinna í ljós að að við­skiptin stóð­ust ekki þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins. Upp­gefið kaup­verð á WOW air , sem átti að greiða með hlutum í Icelanda­ir, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaup­in. Það gat þó lækkað ef áreið­an­leika­könnun sýndi aðra stöðu en gengið var út frá, sem varð nið­ur­stað­an.

Ljóst var að áhyggjur voru farnar látnar á sér kræla á meðal þeirra sem áttu í við­skiptum við WOW air. Í vik­unni þurfti félagið til að mynda að skila fjórum Air­bus vélum til leigu­sala þeirra. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans var það skýrt merki um að ótti var til staðar við það að WOW air myndi fara í greiðslu­þrot sem gæti leitt til þess að flug­vellir gætu kyrr­sett vélar félags­ins vegna van­gold­ina lend­ing­ar­gjalda.

Indigo kemur til sög­unnar

Til að fá sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir sam­runa Icelandair og WOW air lá fyrir að þau kaup þyrftu að vera eini mögu­leik­inn í stöð­unni. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans fóru við­ræður við eft­ir­litið fram á þeim grund­velli að WOW air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæti.

Auglýsing
Það kom því veru­lega á óvart þegar Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, til­kynnti það á starfs­manna­fundi í gær­morgun að félagið ætti í við­ræðum við annan fjár­sterkan aðila um fjár­fest­ingu í WOW air.

Í gær­kvöldi, tólf tímum eftir að greint hafði verið frá því að Icelandair væri hætt við kaup­in, var svo greint frá því að Indigo Partners og WOW air hafa náð sam­komu­lagi um fjár­­­fest­ingu þess fyrr­­nefnda í WOW air.

Í til­­kynn­ingu sagði Bill Franke, einn eig­anda Indigo (Manag­ing Partner), að Skúli Mog­en­­sen, eig­andi og for­­stjóri WOW air, hafi náð miklum árangri við að byggja upp WOW air og að hann hlakki til sam­­starfs við starfs­­fólk félags­­ins. Þar kom einnig fram að Skúli yrði áfram meiri­hluta­eig­andi í WOW air en engar sér­tækar upp­lýs­ingar um hvað fælist í fjár­fest­ing­unni voru birt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar