Alþingi greiðir einungis fyrir auglýsingar í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu

Alþingi hefur ekki auglýst á samfélagsmiðlum hingað til og stefnir ekki á að gera það í náinni framtíð. Reglan er að Alþingi auglýsir aðeins í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Auglýsing

Alþingi hefur ekki aug­lýst á sam­fé­lags­miðl­um, eins og Face­book, In­stagram, YouTu­be og Twitt­er og hefur ekki áform um að gera það. Aug­lýs­inga­kostn­að­ur­ Al­þingis er fyrst fremst aug­lýs­ingar um laus störf á skrif­stofu Alþingis og reglan hefur verið sú að birta þær aug­lýs­ingar í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu. Þetta kemur fram í svari Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, for­seta Alþing­is, við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata. 

Engin áform um að aug­lýsa á sam­fé­lags­miðlum

Björn Leví spurði, í fyr­ir­spurn sinni, hvort Alþingi hafi haft ein­hver útgjöld af aug­lýs­ingum eða kost­aðrar dreif­ingar á sam­fé­lags­miðlum frá árinu 2015. Þing­for­seta svar­aði að Alþingi aug­lýsti ekki á sam­fé­lags­miðlum og hefur þingið því engan aug­lýs­inga­kostnað sem teng­ist þeim miðl­um. Hann sagði þó að á vef Alþingis og Twitt­er-­síðu þess séu hins vegar reglu­lega til­kynn­ingar um starf­semi Alþingis og við­burði á vegum þess. Svipað gildi um Hús Jóns Sig­urðs­sonar í Kaup­manna­höfn, en þar er efni miðlað á vef Jóns­hús­s, Face­book, In­stagram og Flickr. 

Stein­grímur sagði að aug­lýs­inga­kostn­aður Alþingis sé fyrst og fremst aug­lýs­ingar um laus störf á skrif­stofu Alþingis og reglan verið sú að birta slíkar aug­lýs­ingar í þeim tveimur dag­blöðum sem gefin eru út, Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­in­u. Þá birt­ist einnig sömu aug­lýs­ingar á vefn­um ­starfa­torg.is, en þar er að finna upp­lýs­ingar um laus störf hjá rík­inu. Birt­ing aug­lýs­inga á starfa­torgi er Alþingi að kostn­að­ar­lausu. 

Auglýsing

Auk þess sé aug­lýst eftir umsóknum um dvöl í fræði­manns­í­búðum í Jóns­húsi og styrki til að rita meist­ara­prófs­rit­gerð í dag­blöðum og á vef Alþing­is. Þá hafi ein­staka sinnum verið birtar aug­lýs­ingar í Rík­is­út­varp­inu eins og í tengslum við opið hús á Alþingi 2018.

Björn Leví spurði þá einnig hvaða stefnu for­seti Alþingis hefur hvað varðar aug­lýs­inga­kaup á sam­fé­lags­miðlum en sam­kvæmt Stein­grími eru engin áform um að birta aug­lýs­ingar frá Alþingi á sam­fé­lags­miðl­um.

Tvö fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki fá þriðj­ung af aug­lýs­ingafé rík­­is­ins

­Greint var frá því í Kjarn­anum í nóv­­em­ber í fyrra að ráðu­­­neyti, rík­­­is­­­stofn­­­anir og fyr­ir­tæki á vegum hins opin­bera hefðu borgað tæpar 190 millj­­­ónir króna fyrir birt­ingu aug­lýs­inga fyrstu tíu mán­uði síð­­asta árs. Tvö fjöl­miðla­­­fyr­ir­tæki, útgáfu­­­fé­lag Frétta­­­blaðs­ins og Árvakur útgef­andi Morg­un­­­blaðs­ins, fengu sam­tals tæp­­­lega þriðj­ung fjár­­­ins sem hið opin­bera eyddi í aug­lýs­inga­birt­ing­­ar.

Kostn­aður hins opin­bera vegna aug­lýs­inga­birt­inga var 188 millj­­­ónir fyrstu tíu mán­uði árs­ins 2018, þá var ekki tal­in ­með vinna við gerð og hönnun aug­lýs­inga. Þar af fékk útgáfu­­­fé­lag Frétta­­­blaðs­ins 37 millj­­­ónir króna greitt fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar og Árvak­­­ur, útgef­andi Morg­un­­­blaðs­ins og mbl.is, 21 milljón króna. Sam­an­lagt var það rétt tæp­­­lega þriðj­ungur allra aug­lýs­inga­­­kaupa ráðu­­­neyta, ­rík­­­is­­­stofn­ana og rík­­­is­­­fyr­ir­tækja á tíma­bil­inu.

Rík­­­is­út­­­varpið fékk greiddar rúmar tólf millj­­­ónir og Sýn, sem á Stöð 2, ýmsar útvarps­­­­­stöðvar og vef­inn Vísi, fékk fimm millj­­­ónir greiddar fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar rík­­­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent