Breska þingið tók ráðin af ríkisstjórninni vegna Brexit

Þingmenn breska þingsins samþykktu í gærkvöldi að þingið myndi ráða ferðinni í atkvæðagreiðslum um næstu skref í Brexit-viðræðunum. Þrír ráðherrar sögðu af sér til að kjósa með tillögunni en alls hafa nú 27 ráðherrar sagt af sér vegna Brexit.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.
Auglýsing

Þing­menn breska þings­ins sam­þykktu í gær­kvöld að þingið myndi ráða ferð­inni í næstu atkvæða­greiðslum um hver næstu skref verða í Brex­it-­deil­unni. Þrír ráð­herrar úr rík­is­stjórn Ther­esu Ma­y ­sögðu af sér til að kjósa með til­lög­unni, sem lögð var fram af þing­manni Íhalds­flokks­ins. 329 þing­menn greiddu atkvæði með til­lög­unni en 302 voru á móti. Frá þessu er greint á BBC

Mögu­lega kosið um aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu

Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar þykir mik­ill ósigur fyr­ir­ Ma­y og ­rík­is­stjórn­ hennar en hún þýðir að þing­menn­irnir hafa tekið yfir dag­skrá­vald neðri­ ­mál­stofu breska þings­ins. Í atkvæða­greiðsl­unum á mið­viku­dag­inn verður þing­mönn­unum gert kleift að kjósa um ólíkar til­lögur að næstu skrefum í Brex­it-­deil­unni. Sam­kvæmt BBC ­þykir lík­legt að greidd verði atkvæði um „væg­­ari“ út­­göngu úr Evr­ópu­sam­band­inu, tolla­banda­lag við ESB og jafn­vel aðra þjóð­ar­­at­­kvæða­greiðsla um Brex­it. 

Atkvæða­greiðsl­urnar verða þó ekki bind­and­i en þeim er ætlað að finna út hver raun­veru­legur vilji þings­ins er. Ther­es­a Ma­y ­sagð­ist í kjöl­far nið­ur­stöð­unnar ekki getað lofað því að rík­is­stjórnin myndi fara eftir þeim til­lögum sem þingið sam­þykkir í atkvæðagreiðslunum. 

Auglýsing

27 ráð­herrar hafa nú sagt af sér vegna Brexit

Þrír ráð­herrar sögðu af sér til að greiða atkvæði með til­lög­unni, þeirra á meðal er Ric­hard Harr­ington, við­skipta­ráð­herra Bret­lands.  Í heild hafa nú 27 ráð­herrar sagt af sér vegna Brex­it 

Keir St­ar­mer, skugga­ráð­herra Brex­it-­mála hjá Verka­manna­flokkn­um, kall­aði ósigur rík­is­stjórn­ar Ma­y ­nið­ur­læg­ingu en þrjá­tíu þing­menn Íhalds­flokks­ins greiddu atkvæði með til­lög­unn­i.  Hann skrif­aði í Twitt­er-­færslu að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi nú misst stjórn á eigin flokki, ráðu­neyti og öllu Brex­it-­ferl­in­u. Jer­emy Cor­byn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, hrós­aði þing­inu fyrir ákvörðun sína og sagði jafn­framt að rík­is­stjórnin yrði að taka nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar alvar­lega. 

Frest­un Brex­it ­fer eftir atkvæða­greiðsl­unni

Leið­tog­ar Evr­­ópu­­sam­­bands­ins hafa sam­þykkt áætlun um að fresta Brex­it fram yfir 29. mars næst­kom­andi, sem er dag­­setn­ing­in sem hingað til hef­ur verið miðað við. Sam­þykkt var að veita frest til­ 22. maí ef þingið sam­þykkir Brex­it-­samn­ing í vik­unni en ef ekki þá mun Evr­ópu­sam­bandið veita bretum frest til 12. apr­íl.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent