Efling kallar eftir ábendingum frá félagsmönnum um að fyrirtæki hafi brugðist við launahækkunum í nýjum kjarasamningi með því að taka af starfsfólki bónusa, aukagreiðslur og ýmis konar hlunnindi. Markmiðið er að safna gögnum og öðlast betri yfirsýn yfir efndir lífskjarasamninganna. Félagið mun svo bregðast við með viðeigandi hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu.
Samkvæmt Eflingu hefur félagið fengið ábendingar um slíkar aðgerðir. Stéttarfélagið hefur sent Samtökum atvinnulífsins erindi vegna vegna hópuppsagnar hótelstjórans Árna Vals Sólonssonar á launakjörum starfsfólks síns eftir samþykkt kjarasamninganna og hefur óskað eftir fundi með SA.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir vanefndir á kjarasamningum vera grafalvarlegt mál og að þær hljóti að teljast sérstaklega siðlausar í ljósi þess að verkalýðshreyfingin hafi fallist á mjög hófsamar launahækkanir á fyrsta ári samningstímans. „Er það til of mikils mælst að fólk fái sína launahækkun upp á 17 þúsund krónur?“ spyr hann.
Viðar segir dæmið á hótelum Árna Vals Sólonssonar því miður ekki vera það eina. „Það er mjög miður að Samtök atvinnulífsins verji þessa hegðun. Við þetta vakna ansi margar spurningar, til dæmis varðandi möguleikann á riftun, eins og miðstjórn ASÍ hefur bent á í ályktun sinni frá 15. maí síðastliðnum.“