Efling kallar eftir ábendingum um vanefndir

Efling hefur fengið ábendingar um að fyrirtæki hafi brugðist við launahækkunum í nýjum kjarasamningi með því að taka af starfsfólki bónusa, aukagreiðslur og ýmis konar hlunnindi. Félagið kallar eftir frekari ábendingum frá félagsmönnum um slíkar aðgerðir.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Auglýsing

Efl­ing kallar eftir ábend­ingum frá félags­mönnum um að fyr­ir­tæki hafi brugð­ist við launa­hækk­unum í nýjum kjara­samn­ingi með því að taka af starfs­fólki bónusa, auka­greiðslur og ýmis konar hlunn­indi. Mark­miðið er að safna gögnum og öðl­ast betri yfir­sýn yfir efndir lífs­kjara­samn­ing­anna. Félagið mun svo bregð­ast við með við­eig­andi hætti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu.

­Sam­kvæmt Efl­ingu hefur félagið fengið ábend­ingar um slíkar aðgerð­ir. Stétt­ar­fé­lagið hefur sent Sam­tökum atvinnu­lífs­ins erindi vegna vegna hóp­upp­sagnar hót­el­stjór­ans Árna Vals Sól­ons­sonar á launa­kjörum starfs­fólks síns eftir sam­þykkt kjara­samn­ing­anna og hefur óskað eftir fundi með SA.

Viðar Þorseinsson Mynd: RÚVViðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Efl­ing­ar, segir van­efndir á kjara­samn­ingum vera grafal­var­legt mál og að þær hljóti að telj­ast sér­stak­lega sið­lausar í ljósi þess að verka­lýðs­hreyf­ingin hafi fall­ist á mjög hóf­samar launa­hækk­anir á fyrsta ári samn­ings­tím­ans. „Er það til of mik­ils mælst að fólk fái sína launa­hækkun upp á 17 þús­und krón­ur?“ spyr hann.

Auglýsing

Viðar segir dæmið á hót­elum Árna Vals Sól­ons­sonar því miður ekki vera það eina. „Það er mjög miður að Sam­tök atvinnu­lífs­ins verji þessa hegð­un. Við þetta vakna ansi margar spurn­ing­ar, til dæmis varð­andi mögu­leik­ann á rift­un, eins og mið­stjórn ASÍ hefur bent á í ályktun sinni frá 15. maí síð­ast­liðn­um.“

Hér er hægt að skoða ákallið til félags­manna Efl­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent