Búið að vísa Klausturmálinu til siðanefndar Alþingis

Tveir tímabundnir varaforsetar forsætisnefndar hafa vísað Klausturmálinu, sem snýst um drykkjutal sex þingmanna Miðflokksins, til siðanefndar Alþingis.

Þingmenn - Klaustur bar
Auglýsing

Klaust­ur­málið svo­kall­aða er komið til siða­nefndar Alþingis frá for­sætis­nefnd. Þetta stað­festir Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna og annar tíma­bund­inna vara­for­seta for­sætis­nefndar sem fjall­aði um mál­ið, í sam­tali við Kjarn­ann.

­Stein­unn og og Har­aldur Bene­dikts­son þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins voru kjörin vara­­for­­setar for­­sæt­is­­nefndar Alþingis í jan­úar síð­ast­liðnum til að fjalla um Klaust­ur­málið eftir að Stein­grímur J. Sig­­fús­­son, for­­seti Alþing­is, og allir vara­­for­­setar úr hópi þing­­manna, sögðu sig frá umfjöllun um Klaust­­ur­­mál­ið, vegna van­hæfis þann 17. des­em­ber 2019.

Siða­nefnd hefur þegar skilað for­sætis­nefnd áliti vegna Klaust­ur­máls­ins, en það var birt í lok mars síð­ast­lið­ins. Stein­unn Þóra og Har­aldur höfðu óskað eftir álit­inu. Í því sagði meðal ann­ars: „„Al­­þing­is­­­menn eru op­in­ber­ar per­­­són­­­ur, sú hátt­­­semi sem um ræðir átti sér stað á op­in­ber­um vett­vangi og teng­ist mál­um sem hafa verið áber­andi í þjóð­­fé­lags­um­­ræð­unni. Þar sem hátt­ernið varðar al­­­menn­ing verður ekki litið á þau at­vik sem hér um ræðir sem einka­­­sam­­tal.“

Auglýsing
Var það mat meiri­hluta nefnd­ar­innar að sam­ræð­­urnar sem fóru fram á barnum Klaustri á milli sex þing­­manna Mið­­flokks­ins og Flokks fólks­ins, á þeim tíma sem sam­ræð­­urnar áttu sér stað,  falli undir gild­is­­svið siða­reglna þings­ins.

Sex þing­menn á bar

Klaust­ur­málið snýst um eft­ir­far­andi: Þriðju­dag­inn 20. nóv­em­ber fóru sex þing­menn – fjórir úr Mið­flokki og tveir úr Flokki fólks­ins – á bar­inn Klaust­ur, í námunda við Alþing­is­hús­ið. Þar sett­ust þeir nið­ur, drukku áfengi og töl­uðu með niðr­andi og meið­andi hætti um sam­starfs­fólk sitt í stjórn­mál­um.

Þeir stærðu sig einnig að póli­tískum hrossa­kaupum með sendi­herra­stöð­ur, þing­menn Mið­flokks­ins reyndu að telja þing­menn Flokks fólks­ins um að ganga til liðs við sig auk þess sem nið­ur­lægj­andi orð eru látin falla um Freyju Har­alds­dótt­ur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann og þekktan bar­áttu­mann fyrir auknum rétt­indum fatl­aðra sem glímir við sjald­gæfan bein­sjúk­dóm, og þekktan sam­kyn­hneigðan tón­list­ar­mann.

Það sem þing­menn­irnir sex, þeir Sig­­­mundur Dav­­íð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins , Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­ari flokks­ins, Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins og Karl Gauti Hjalta­­­son og Ólafur Ísleifs­­­son úr Flokki fólks­ins, vissu ekki var að í nálægð við þá sat ein­stak­lingur sem upp­haf­lega kall­aði sig bara „Mar­vin“. Sá tók upp það sem fram fór. Og sendi á valda fjöl­miðla.

Upp­tök­urnar voru síðar birtar í fjöl­miðlum og „Mar­vin“ steig síðar fram sem Bára Hall­dórs­dótt­ir.

Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son hafa gengið til liðs við Mið­flokk­inn.

Þór­hildur Sunna fyrst til að brjóta siða­reglur

Þór­hildur Sunna Ævar­s­dótt­ir, þing­­flokks­­for­­maður Pírata, varð í síð­ustu viku fyrst íslenskra þing­manna til að vera úrskurðuð brot­leg við siða­reglur þing­manna. Hún var talin hafa verið brot­leg við ­siða­­reglur þing­­manna með ummælum um meinta sjálftöku Ásmundar Frið­­riks­­son­­ar, þing­­manns Sjálf­­stæð­is­­flokks, þegar hún sagði, í Silfr­inu fyrr á þessu ári, eft­ir­far­and­i: „Við sjáum það að ráð­herrar þjóð­­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­um, þing­­menn þjóð­­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­­um. Nú er uppi rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­­riks­­son hafi dregið að sér fé, almanna­­fé, og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að segja á fót rann­­sókn á þessum efn­­um.“

Þór­hildur Sunna ræddi þessa nið­ur­stöðu í við­tali í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut á þriðju­dag. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an:

 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent