Nigel Farage og félagar í Brexit flokknum snéru baki í flutning á laginu Óðurinn til gleðinnar við setningu nýs Evrópuþings. Flutningurinn sem fluttur var af saxofón kvartett var hinn hátíðlegasti og átti að bjóða nýja þingmenn velkomna.
Alls eru 29 meðlimir í Brexit flokknum. Líkt og nafnið gefur til kynna styðja þingmenn flokksins við Brexit og eru and-Evrópusinnar.
Ekki voru aðrir þingmenn alls kostar ánægðir með gjörninginn og sögðu sumir hann vera aumkunarverðan. Aðrir sögðu að þingmennirnir hafi sýnt Evrópu og öðrum þingmönnum mikla vanvirðingu með atlætinu.
Auglýsing