Segir að ekki verði samið um betri Brexit samning

Forseti framkvæmdastjórnar ESB segir núverandi Brexit samning vera þann eina mögulega og ekki verði samið um annan betri. Afstaða hans er í andstöðu við Boris Johnson sem segist munu semja um annan betri ellegar fari Bretland úr ESB án samnings.

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
Auglýsing

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, segir að núver­andi Brexit sé samn­ingur sé sá eini mögu­legi og ekki verði hægt að semja um annan betri. Það er í and­stöðu við það sem Boris John­son, nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur haldið fram. 

Boris hefur í kosn­inga­bar­áttu sinni jafnt sem eftir að hann tók við for­sæt­inu haldið því fram að hann muni geta samið um annan Brexit samn­ing sem verði Bret­landi hag­stæð­ari. Jafn­framt muni hann vera búinn að semja um nýjan Brexit samn­ing við ESB þann 31. októ­ber næst­kom­and­i. 

Auglýsing
Hins vegar seg­ist Boris vera til­bú­inn að hafa engan samn­ing við útgöngu Bret­lands úr ESB og hefur vinna á meðal rík­is­stjórnar hans undir þær aðstæður þegar haf­ist. Því gæti svo orðið að Bret­land fari úr ESB samn­ings­laust. ­Boris seg­ist heldur vilja að útganga Bret­lands úr ESB eigi sér stað með samn­ingi, en hins vegar hafi for­vera hans, Ther­esu May, mis­tek­ist þrí­vegis að koma Brexit samn­ingi í gegnum breska þing­ið. 

­Sam­kvæmt heim­ilda­mönnum the Guar­dian er Juncker til­bú­inn að bæta nýjum skil­yrðum við samn­ing­inn svo lengi sem þau séu sam­bæri­leg við núver­andi samn­ing. 

Í fyrstu ræðu sinni sem for­sæt­is­ráð­herra sagði Boris Bret­land, haf­andi gengið úr ESB, árið 2050 verða „besta og far­sælasta hag­kerfi Evr­ópu með nýjum frí­versl­un­ar­samn­ing­um.“

Írar og Skotar áhyggju­full­ir 

Írska rík­is­stjórnin hefur lýst yfir áhyggjum sínum yfir nálgun Borisar gagn­vart Brex­it. Land­bún­að­ar­ráð­herra Írlands sagði að afstaða hinnar nýju bresku rík­is­stjórnar væri Írum kvíð­væn­leg. 

Nicola Stur­ge­on, for­sæt­is­ráð­herra skosku heima­stjórn­ar­inn­ar, hefur nú þegar sent for­sæt­is­ráð­herra bréf um mál­efni Skotlands og afstöðu gagn­vart Brex­it. Bréfið gefur til kynna að efnt verður til nýrra atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands. 

Í bréf­inu leggur Stur­geon áherslu á að meiri­hluti Skota hafi kosið með því að vera áfram innan Evr­ópu­sam­band­inu. Hún sagði að útganga úr ­sam­band­inu myndi hafa alvar­leg áhrif á líf og störf Skota og myndi fækka störfum í Skotlandi um hund­rað þús­und. „Réttur Skota til að ákveða sína eigin fram­tíð er grunnur lýð­ræð­is­lög­mála sem þarf að virða,“ skrif­aði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent