Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að lög séu eitt og menning annað. „Þó að fáir kippi sér upp við það þegar samstarfsfélagi mætir með maka af sama kyni í jólahlaðborðið þykir það enn töluvert mál í samfélaginu að fara í kynleiðréttingu og skipta um fornafn. Barátta transfólks afhjúpar þannig hið rótgróna kynjaða kerfi sem við búum við, hversu kynjað tungumálið okkar er og allar upplýsingar sem við veitum um okkur. Barátta transfólks og alls hinsegin fólks er nátengd annarri jafnréttisbaráttu.“
Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu ASÍ í dag sem skrifuð er vegna Hinsegin daga sem standa nú yfir.
Þá segir Drífa að réttindabarátta hinsegin fólks sé þannig orðin órjúfanlegur hluti af framsæknum baráttumálum og að á þingi Alþjóða vinnumálastofnunarinnar í sumar hafi LGBT+ verið skilgreint í umræðunni sem hópur sem á undir högg að sækja.
„Þetta var mjög áberandi í umræðum um nýja samþykkt gegn ofbeldi og áreitni í vinnuumhverfinu gagnvart viðkvæmum hópum. Alþýðusambandið mun leggja áherslu á að þessi samþykkt verði fullgilt hér á landi og í því felist að hinsegin fólk sé skilgreint sem minnihlutahópur sem þurfi enn sem komið er að njóta verndar og athygli þegar gætt er jafnræðis á vinnumarkaði,“ skrifar hún.
Stutt síðan hommar og lesbíur sættu aðkasti
Drífa segir að mannréttindabarátta hinsegin fólks sé ein árangursríkasta barátta sem háð hefur verið síðustu áratugi. Það sé ótrúlega stutt síðan hommar og lesbíur sættu aðkasti og jafnvel útilokun í íslensku samfélagi. Góðu heilli hafi margt breyst síðustu tvo áratugi og ótal lagaleg og menningarleg skref verið stigin í átt til betri vegar. Reykjavík Pride sé ein stærsta fjölskylduhátíð landsins þar sem fjölbreytileikanum er fagnað og fordómum úthýst.
Það sama gildi um vinnumarkaðinn. Á síðasta ári hafi verið samþykkt lög sem fjalla sérstaklega um jafna meðferð óháð kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu. „Það er sem sagt bannað að mismuna fólki á vinnumarkaði sem er hinsegin – eðlilega.“
Ekki í lagi að hinsegin fólk telji sig þurfa að leyna kynhneigð sinni
„Sem hagsmunasamtök vinnandi fólks eru stéttarfélög tilbúin að taka upp hanskann fyrir félagsmenn sem eru beittir órétti og heildarsamtök vinnandi fólks á almennum vinnumarkaði styður heilshugar hinsegin baráttu. Það er ekki í lagi að hinsegin fólk telji sig þurfa að leyna kynhneigð sinni eða kynvitund fyrir vinnufélögum eins og vísbendingar eru um. Það er því enn verk að vinna til að breyta hugsanahætti og menningu til hins betra. Mætum á Reykjavík Pride, verum stolt af árangrinum en gerum getur!“ skrifar Drífa að lokum.
Drífa Snædal forseti ASÍ skrifar: Gleðilega hinsegin daga – Reykjavík Pride! Mannréttindabarátta hinsegin fólks er ein...
Posted by Alþýðusamband Íslands - ASÍ on Monday, August 12, 2019
15 prósent hinsegin fólks segjast fá færri tækifæri
Samkvæmt nýrri könnun, sem deilt var á samfélagsmiðlum og send á fyrirtæki og viðskiptavini Kauphallarinnar, upplifir 15 prósent hinsegin fólks sig hafa færri tækifæri á vinnumarkaði en aðrir. Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga, segist í samtali við RÚV í dag hafa áhyggjur af þessum niðurstöðum en segir þær þó ekki koma á óvart.
Þá kemur fram í könnuninni að um 30 prósent hinsegin fólks hafi fengið nærgöngular spurningar frá samstarfsfólki. „Og þarna erum við að sjá furðuhátt hlutfall sem fær einhvers konar óviðeigandi athugasemdir eða mjög nærgöngular spurningar varðandi sitt einkalíf eða kynlíf eða annað,“ segir Gunnlaugur Bragi. „Og svo er það þessi áhugaverði vinkill það er ýmist verið að hrósa hinseginn fólki fyrir að vera frekar venjulegt eða hrósa því fyrir að vera ekki nógu hinsegin, ertu viss um að þú sért hommi? Þú hefur ekki einu sinni áhuga á Eurovision.“