Verkstjórn samstarfsaðila GAMMA var verulega ábótavant og kostnaður vanmetinn

GAMMA segir að það verði forgangsverkefni hjá sér að hámarka endurheimtur í sjóði sem félagið stofnaði í Bretlandi, og hefur verið færður verulega niður. Verkstjórn samstarfsaðila hafi verið ábótavant og kostnaður vanmetinn.

Gamma-6.jpg
Auglýsing

Við mat á sjóðnum GAMMA: Ang­lia, sem fjár­festir í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efnum í Bret­landi, kom í ljós að „verk­stjórn eins sam­starfs­að­ila sjóðs­ins var veru­lega ábóta­vant og kostn­aður var van­met­inn. Hefur sjóð­ur­inn fært fjár­fest­ingar sem gerðar voru í sam­starfi við umræddan aðila nið­ur, auk kostn­aðar við und­ir­bún­ing bygg­ingar fjöl­býl­is­húss sem hafnað var af skipu­lags­yf­ir­völd­um.“ 

Nýir aðilar hafa verið ráðnir til að hafa umsjón með verk­efnum GAMMA: Ang­lia í Bret­landi og for­gangs­verk­efni hjá þeim verð­ur  að hámarka end­ur­heimtur hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í sjóðn­um, en gengi hans var fært niður úr 105 í 55 í fyrra­dag.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í til­kynn­ingu sem nýr fram­kvæmda­stjóri GAMMA, Máni Atla­son, hefur sent frá sér vegna end­ur­mats á stöðu tveggja sjóða í stýr­ing hjá félag­in­u. 

Hinn sjóð­ur­inn sem var færður nið­ur, GAMMA: Novus, var sagður eiga 4,4 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót og um 3,8 millj­arða króna fyrir þremur mán­uðum síð­an. Eftir end­ur­mat á eignum hans er eigið fé sjóðs­ins metið á 42 millj­ónir króna.

Í til­kynn­ing­unni segir að á síð­ari hluta árs­ins 2019 hafi stjórn GAMMA ráðið inn nýtt teymi sér­fræð­inga, í kjöl­far þess að Kvika eign­að­ist allt hlutafé félags­ins. Í kjöl­far vinnu sér­fræð­ing­anna hafi gengi GAMMA: Novus og GAMMA: Ang­lia verið fært niður í sam­ræmi við stöðu að mati núver­andi stjórn­enda GAMMA. Sam­hliða nið­ur­færslu var skip­aður nýr sjóð­stjóri í báðum sjóð­u­m. 

Í til­kynn­ing­unni er farið yfir að við mat á stöðu GAMMA: Novus hafi komið í ljós að eigið fé Upp­hafs fast­eigna­fé­lags, sem er í eigu sjóðs­ins, hafi verið veru­lega ofmet­ið. „Fyrir liggur að kostn­aður við fram­kvæmdir verk­efna á vegum félags­ins er van­met­inn. Jafn­framt var raun­fram­vinda verk­efna félags­ins ofmet­in. Sú staða sem upp er komin kallar á end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­hag félags­ins og nýja fjár­mögnun til að tryggja fram­gang verk­efna og hámarka virði eigna.“

Auglýsing
Inni í félag­inu séu hins vegar veru­legar eign­ir, þar á meðal 277 íbúðir í bygg­ingu. „Með sölu full­bú­inna fast­eigna verður hægt að ná veru­legum end­ur­heimtum af fjár­munum kröfu­hafa félags­ins. Boð­aður hefur verið fundur með skulda­bréfa­eig­endum og við­ræður hafa átt sér stað við aðra kröfu­hafa um björgun félags­ins.“ Á meðal þeirra sem hafa fært mikið bók­fært tap vegna eignar sinnar í sjóðnum eru þrjú skráð trygg­inga­fé­lög, TM, Sjóvá og VÍS. Sam­an­lagt nemur tap þeirra 610 millj­ónum króna, mest hjá TM sem færði niður sína eign um 300 millj­ónir króna. Á meðal stærstu eig­enda þeirra allra eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. 

Auk hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa, sem hafa sett millj­arða króna í sjóð­inn, þá lán­aði hópur fjár­festa GAMMA: Novus 2,7 millj­arða króna í júní síð­ast­liðnum í skulda­bréfa­út­boði. Bréfin voru til tveggja ára, áttu upp­haf­lega að bera 11 pró­sent vexti en end­uðu í 15 pró­sent­um. Þær upp­lýs­ingar sem þátt­tak­endur í skulda­bréfa­út­boð­inu fengu á þeim tíma um stöðu sjóðs­ins voru allt aðrar en sú staða sem nú blasir við, eftir end­ur­mat á eign­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent