Þrjú tryggingafélög tapa 610 milljónum á GAMMA – Verið að kanna refsiverða háttsemi

Félag fyrrverandi aðaleiganda og annars stofnenda GAMMA hagnaðist um milljarð króna í fyrra. VÍS, Sjóvá og TM, sem eru meðal annars í eigu lífeyrissjóða, hafa tapað hundruð milljóna vegna niðurfærslu á GAMMA-sjóði.

hús
Auglýsing

Trygg­inga­fé­lagið VÍS sendi frá sér afkomu­við­vörun í gær­kvöldi þar sem gert var grein fyrir því að afkoma félags­ins til árs­loka verði óhag­stæð­ari en spá hafði gert ráð fyr­ir. Sam­kvæmt drögum að árs­hluta­upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung verður afkoman nei­kvæð um 370 til 420 millj­óna króna en áður hafði verið gert ráð fyrir því að hagn­aður upp á 138 millj­ónir króna yrði af starf­semi VÍS á árs­fjórð­ungn­um.

Í til­kynn­ing­unni segir að marg­þættar ástæður séu fyrir þess en að mest vigti verri afkoma af skráðum hluta­bréfum í eigu félags­ins. Einnig skiptir máli að VÍS átti hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðnum GAMMA: Novus, sem var færður niður í fyrra­dag um millj­arða króna. Nið­ur­færsla VÍS vegna þessa nemur 155 millj­ónum króna.

Þar með hafa öll þrjú skráðu trygg­inga­fé­lög lands­ins fært niður eignir vegna GAMMA: Novus. Bók­fært tap TM vegna fjár­fest­inga í sjóðnum nemur um 300 millj­ónum króna og Sjóvá bók­færði tap upp á 155 millj­ónir króna.

Auglýsing
Samanlagt nemur bók­fært tap trygg­inga­fé­lag­anna þriggja vegna GAMMA: Novus því 610 millj­ónum króna. Á meðal helstu eig­enda allra þriggja eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sem bera því óbeint umrætt tap. Á meðal ann­arra fjár­festa í sjóðnum voru Guð­björg Matth­í­as­dótt­ir, aðal­eig­andi Ísfé­lags Vest­manna­eyja og útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, og fjár­fest­inga­fé­lagið Stoð­ir. 

Í Frétta­blað­inu í dag er greint frá því að hópur hlut­deild­ars­kirtein­is­hafa ­kanni nú rétt­ar­stöðu sína um hvort refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað í tengslum við starf­semi sjóðs­ins. 

Búið að skipta um sjóð­stjóra

Kjarn­inn greindi frá því á mánu­dag að sam­kvæmt hálfs­árs­upp­gjör Novu­s-­sjóðs­ins í fyrra hafi eigið fé hans verið 4,8 millj­arðar króna. Um síð­ustu ára­mót var það sagt 4,4 millj­arðar króna.

Í ein­blöð­ungi sem sendur var út til hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í gær kom fram að eigið fé hans væri 42 millj­ónir króna. Eigið féð hafði gufað upp og fyrir lá að virði eigna hafði verið stór­lega ofmet­ið. Helsta eign sjóðs­ins er Upp­­haf fast­­eigna­­fé­lag slhf. sem hefur byggt nokkur hund­ruð íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá því að sjóð­ur­inn var settur á lagg­irnar 2013. 

Auk þess réðst sjóð­ur­inn í skulda­bréfa­út­gáfu í byrjun júní sem seld var á þeim for­sendum að eigið fé GAMMA: Novus væri mun hærra en það reynd­ist eftir end­ur­mat á eign­um. 

Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, sem var sjóðs­stjóri GAMMA: Novus, mun vera að hætta störfum hjá GAMMA. Máni Atla­son, nýr fram­kvæmd­stjóri GAMMA, hefur tekið við stýr­ingu á sjóðn­um. 

Félag fyrr­ver­andi for­stjóra hagn­að­ist um millj­arð

Kvika keypti GAMMA form­lega fyrr á þessu ári þó að kaupin hafi verið að mestu frá­gengin í nóv­em­ber í fyrra, með fyr­ir­vara um sam­þykki eft­ir­lits­að­ila. Kaup­verðið átti að sam­an­standa af 839 milljón króna greiðslu í reiðu­fé, hlut­deild­ars­kirteinum í sjóðum GAMMA og árang­urstengdum greiðsl­um. Mikil til­tekt hefur staðið yfir í sjóðum síð­ar­nefnda félags­ins síðan þá. Sjóðum hefur verið lok­að, aðrir sam­ein­aðir öðrum sjóðum innan Kviku­sam­stæð­unnar og tveir sjóð­ir, áður­nefndur Novus og útrás­ar­sjóð­ur­inn GAMMA: Ang­lia, verið færðir veru­lega nið­ur. Kjarn­inn greindi frá því að gengi Ang­li­a-­sjóðs­ins hafi verið lækkað um næstum helm­ing 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, úr 105 í 55. Á meðal fjár­festa í honum voru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. 

Auglýsing
Helstu stjórn­endur GAMMA, sem var stofnað fyrir rúmum ára­tug, hafa verið látnir fara á und­an­förnum miss­er­um. Í fyrra­vor lét Gísli Hauks­son, annar stofn­enda og fyrr­ver­andi for­stjóri og stjórn­ar­for­maður GAMMA, af störfum og um síð­ustu mán­aða­mót var greint frá því að Valdi­mar Ármann, sem tók við sem for­stjóri, væri líka hætt­ur.Gísli Hauksson.

Kvika átti, sam­kvæmt til­kynn­ingu að greiða um 2,4 millj­arða króna fyrir GAMMA og hafði verð­mið­inn þá lækkað úr 3,8 millj­örðum króna á nokkrum mán­uð­um. Bank­inn er ekki búinn að greiða nema hluta þess kaup­verðs en sam­kvæmt hálfs­árs­upp­gjöri hans nemur sú greiðsla um 1,4 millj­örðum króna. Það sem eftir stendur er að uppi­stöðu árang­urstengdar greiðslur og því óvíst hvert loka­verðið verð­ur. 

Frétta­blaðið greinir frá því í morgun að fjár­fest­inga­fé­lags Gísla Hauks­sonar hafi hagn­ast um tæp­lega 1,1 millj­arð króna á árinu 2018 og að hagn­að­ur­inn hafi auk­ist um einn millj­arð króna milli ára. Félag­ið, Ægir Invest, hélt á um 30 pró­sent hlut Gísla í GAMMA. Í Frétta­blað­inu segir að hinn mikli hagn­aður skýrist af verð­breyt­ingu á eign­ar­hlutum í inn­lendum félögum í eigu fjár­fest­inga­fé­lags Gísla. Í félag­inu eru eignir sem metnar eru á rúm­lega 1,5 millj­arð króna en skuldir þess námu 189 millj­ónum króna. Á meðal eigna eru list­munir sem metnir voru á 123 millj­ónir króna.

Þar er einnig sagt frá því að verið sé að taka saman greiðslur sem runnu frá fast­eigna­fé­lag­inu Upp­hafi, í eigu GAMMA: Novus, til félaga sem tengjast Pétri Hann­essyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Upp­hafs, til starfs­manna­leig­unnar Elju, sem er stýrt og að hluta í eigu Arn­ars Hauks­son­ar, bróð­urs Gísla Hauks­sonar og til verk­fræði­stof­unnar Erils sem var eft­ir­lits­að­ili með fast­eigna­verk­efnum Upp­hafs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent