„Frumvarpsdrögin sem kynnt voru í gær valda miklum vonbrigðum þar sem í þeim er lögð til veruleg veiking á samkeppnislögum sem rýra munu kjör almennings.“ Þetta kemur fram í frétt á vef Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag. Tilefnið er framlagning nýs frumvarps iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þar sem lagt er til að koma í veg fyrir að Samkeppniseftirlitið geti borið niðurstöður áfrýjunarnefndar undir dómstóla og að eftirlitið geti þvingað fram breytingar á skipulagi fyrirtækja.
Í frétt eftirlitsins segir að það sé alvarlegt að með frumvarpinu sé lagt til að felld verði niður heimild Samkeppniseftirlitsins til málskots til dómstóla til að verja hagsmuni almennings og fyrirtækja sem mátt hafa þolað skaðlegar samkeppnishindranir. „Þannig verður Samkeppniseftirlitinu gert ókleift að tryggja að hagsmunir þessara aðila fái fullnaðarúrlausn fyrir dómstólum. Stór fyrirtæki sem eru ósátt við úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála geta borið þá undir héraðsdóm, Landsrétt og eftir atvikum Hæstarétt. Verði frumvarpið að lögum mun hins vegar engin gæslumaður almannahagsmuna geta borið úrskurði nefndarinnar undir dómstóla. Verður þá skapað kerfi þar sem hagsmunagæsla öflugra fyrirtækja nýtur að þessu leyti forgangs og yfirburða gagnvart hagsmunum neytenda og smærri fyrirtækja.“
Samkeppniseftirlitið gerir líka athugasemd við, og telur mikið áhyggjuefni, að lagt sé til að lögð verði niður heimild þess til að grípa til íhlutunar vegna tiltekinna skaðlegra samkeppnisaðstæðna. Heimildin gerir eftirlitinu til dæmis kleift að koma í veg fyrir að fyrirtæki sitji óáreitt að einokunarhagnaði almenningi til tjóns. „Þá er líka ljóst að frumvarpið er í beinu ósamræmi við aðgerðir á vettvangi ráðuneytisins, í samstarfi við OECD, sem miðar að því að draga úr samkeppnishindrunum, þ. á m. reglubyrði, sem stafar af lögum og reglum. Sú vinna miðar að því að efla samkeppni, almenningi til hagsbóta, á meðan tillögur í frumvarpinu hafa í veigamiklum atriðum þveröfug áhrif, þ.e. veikja samkeppnislögin og draga úr möguleikum Samkeppniseftirlitsins til að stuðla að aukinni samkeppni.“
Samkeppniseftirlitið seigr að það muni, í umsögn sinni til ráðherra vegna frumvarpsins, vara eindregið við lögfestingu þess í núverandi horfi.