Rúmlega áttatíu konur hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu vegna skaðlegrar orðræðu um kynferðisbrot en tilefnið er grein eftir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur sem birtist á vef Fréttablaðsins í gær. Anna Bentína Hermansen er skrifuð fyrir yfirlýsingunni.
„Í greininni fagnar höfundur nýföllnum dómum í málum Freyju Haraldsdóttur og Atla Rafns Sigurðssonar. Að mati greinarhöfundar hafa málsaðilar beggja mála mætt mannfjandsamlegum viðhorfum sem lögðu grunninn að þeim brotum sem þau urðu fyrir. Steinunn Ólína segir að það sé ekki síst #metoo byltingin sem lagði grunninn að þessum viðhorfum og að í kjölfar #metoo hafi konur flykkst fram á vígvöllinn til að bera aðra sökum án þess að þurfa að standa fyrir máli sínu,“ segir í yfirlýsingunni.
Þær sem skrifa undir fyrrnefnda yfirlýsingu vilja bregðast við þessum ummælum „þar sem greinin lýsir afar skaðlegri orðræðu gagnvart brotaþolum kynferðisofbeldis almennt þó að ein manneskja, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, sé tekin fyrir í greininni, sem „sjálfskipaður leiðtogi brotaþola kynferðisofbeldis”.“ Orðræða sem þessi sendi alvarleg skilaboð út í samfélagið og hafi að engu trúverðugleika brotaþola kynferðisofbeldis.
„Í þeim undantekningartilfellum þegar gerandinn játar að hafa beitt kynferðisofbeldi, sem á við um reynslu Þórdísar Elvu, þá kallar greinarhöfundur hann „meintan geranda“. Steinunn Ólína bætir um betur og segir brotaþola hafa „sagst” hafa orðið fyrir nauðgun, með það að markmiði að véfengja það ofbeldi sem Þórdís Elva varð fyrir,“ segir í yfirlýsingunni.
Margar konur hafa reynslu af kynferðisbrotum sem hvergi eru skráð í lögregluskýrslum
Þá kemur enn fremur fram í yfirlýsingunni að samkvæmt Steinunni Ólínu sé Þórdís Elva haldin hefndarfýsn og drottnunargirni með því að draga geranda sinn til ábyrgðar sem hann hafi sjálfur gengist við af fúsum og frjálsum vilja.
Að þeirra mati lýsir greinin þeim viðhorfum að frásagnir af kynferðisofbeldi séu marklausar nema þær fari í gegnum réttarkerfið og gerandinn hljóti dóm fyrir brot sitt.
„Nauðgun er í eðli sínu ofbeldi þar sem drottnunargirni er í aðalhlutverki. Það er frekar öfugsnúið að saka brotaþola kynferðisofbeldis um þær hvatir ef hann segir frá nauðgun fremur en gerandann fyrir að hafa nauðgað.
Brotaþolar sjá slík viðhorf kristallast víða í samfélaginu og #metoo byltingin reis ekki síst upp gegn slíkum viðhorfum. #metoo sýndi samfélaginu hversu margar konur hafa reynslu af kynferðisbrotum sem hvergi eru skráð í lögregluskýrslum,“ segir í yfirlýsingunni.
Konur sem segja frá kynferðisofbeldi opinberlega líka tortryggðar
Þær benda hins vegar á að staðreyndin sé sú að fjölmargar konur sem verða fyrir kynferðisofbeldi segja aldrei frá því opinberlega og kæra ekki geranda/gerendur. Ekki síst vegna þess að aðeins í undantekningartilfellum hljóti þær áheyrn dómstóla. Konur sem segja frá kynferðisofbeldi opinberlega og hafa jafnvel kært ofbeldið séu líka tortryggðar, meira að segja þrátt fyrir að gerandi þeirra hafi játað verknaðinn. Grein Steinunnar Ólínu afhjúpi þann veruleika rækilega.
„Sú orðræða er algeng að konur sem segja frá kynferðisofbeldi, án leikreglna sem þykir samfélaginu þóknanlegt, séu mannorðsmorðingjar og vegi að æru manna. Oft er vegið að trúverðugleika þeirra kvenna og þeim mæta afar „mannfjandsamleg viðhorf” sem næra nauðgunarmenningu og gerendameðvirkni. Sama hvaða leikreglum þær fylgja mætir þeim iðulega tortryggni og það þrátt fyrir #metoo.
Ef Steinunn Ólína telur það vera keppni í ofbeldi að niðurlægja fólk án dóms og laga er hún sigurvegari í þeirri keppni með þessari grein. Að hennar mati á baráttufólk gegn kynferðisofbeldi að setja hag brotaþola kynferðisofbeldis í forgang. Líklega er það eina atriðið í greininni sem við getum verið sammála um. Ef þessi grein átti að stuðla að því markmiði bregst hún hins vegar brotaþolum kynferðisofbeldis algjörlega,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.
Undir yfirlýsinguna skrifa:
- Aðalheiður Alenu Jóhannsdóttir
- Agnes Bára Aradóttir
- Alexandra Rós Jóhannesdóttir
- Anna Bentína Hermansen
- Anna Soffía Víkingsdóttir
- Aþena Mjöll Pétursdóttir
- Ásgerður Jóhannesdóttir
- Berglind Þórsteinsdóttir
- Bergljót María Sigurðardóttir
- Brynhildur Björnsdóttir
- Brynhildur Yrsa Valkyrja
- Brynja Bjarnadóttir
- Candice Michelle Goddard
- Edda Rún Aradóttir
- Elsa Björk Harðardóttir
- Elísabet Ýr
- Emma Ásudóttir Árnadóttir
- Erla Kr Bergmann
- Elsa Björk Harðardóttir
- Erla Elíasdóttir Völudóttur
- Erla Einarsdóttir
- Erna Dýrfjörð Stefánsdóttir
- Eyrún Eva Gunnarsdóttir
- Freydís Dögg Steindórsdóttir
- Freyja Vals Sesseljudóttir
- Friðgerður Ósk Jóhannsdóttir
- Guðbjörg Ýr Valkyrja Guðbjargardóttir
- Guðný Elísa Guðgeirsdóttir
- Guðrún Helga Eyþórsdóttir
- Gunna Róbertsdóttir
- Hafdís Erla Jónudóttir
- Hrafndís Katla
- Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir
- Halldóra Jónasdóttir
- Helga Bjarnadóttir
- Helga Gestsdóttir
- Helga Rósa Atladóttir
- Heiða Björg Hilmisdóttir
- Heiða Valdís Ármann
- Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir
- Hjördís Guðlaugsdóttir
- Hjördís Líney Aðalsteinsdóttir
- Hlíf Steinsdóttir
- Hrund Ólafsdóttir
- Inga María Vilhjálmsdóttir
- Ingibjörg Eyfjörð Hólm
- Magnea
- Margrét Pétursdóttir
- Margrét Baldursdóttir
- Jennie Maria Katarina Jönsson
- Karen Linda
- Katrín Atladóttir
- Katrín Ólafsdóttir
- Kristin Johansen
- Kristín Jónsdóttir
- Kristín S. Bjarnadóttir
- Kristín Helga Schiöth
- Kristjana Einarsdóttir
- Linda Björk
- Lóa Baldvinsdóttir Andersen
- Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir
- Ósk Gunnlaugsdóttir
- Ragna Björg Björnsdóttir
- Ragna Ragnarsdóttir
- Ragnheiður Helga Bergmann Hafsteinsdóttir
- Rakel Sesselja Hostert
- Salóme Mist Kristjánsdóttir
- Sandra Rut Skúladóttir
- Sara Björk Biering
- Sigríður D. Aradóttir
- Sigurbjörg Anna Guðnadóttir
- Sigurlaug Lára
- Sigrún Ósk Arnardóttir
- Sigrún Sif Jóelsdóttir
- Sjöfn Friðriksdóttir
- Sunna Kristinsdóttir
- Særós Rannveig Björnsdóttir
- Tara Margrét
- Tinna Björk Pálsdóttir
- Unnur Mjöll
- Vibeke Svala Kristinsdóttir
- Þóra Kristín Þórsdóttir
- Þórhildur Löve
- Þórunn Vignisdóttir