Samherji hefur hagnast um 112 milljarða á átta árum

Samherji hefur hagnast gríðarlega á síðustu árum. Eigið fé samstæðunnar var 111 milljarðar króna um síðustu áramót. Fjárfestingar Samherja eru mun víðar en bara í sjávarútvegi.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Auglýsing

Sjáv­ar­út­vegs­ris­inn er þekkt­astur fyrir umfang sitt í þeim geira, enda stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins. Sam­herj­a-­sam­stæðan á alls 7,1 pró­sent af úthlut­uðum kvóta hér­lendis beint. Síld­­ar­vinnslan heldur svo á 5,3 pró­­sent allra afla­heim­ilda, en hún er í 44,6 pró­­sent eigu Sam­herja auk þess sem Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unn­i. 

Berg­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. Þá er ótalið Útgerð­­ar­­fé­lag Akur­eyr­inga, sem heldur á 1,3 pró­­sent kvót­ans, og er að öllu leyti í eigu Sam­herja. Sam­an­lagt er afla­hlut­­deild þess­­ara félaga 16 pró­­sent. Auk þess á Sam­herji vit­an­lega umfangs­mikla sjáv­ar­út­vegs­starf­semi í Evr­ópu og Afr­ík­u. 

Sam­herj­a-­sam­stæðan ,sem sam­anstendur af tveimur félög­um, átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok síð­asta árs. Hagn­aður Sam­herja vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­­örðum króna. Hagn­aður Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar hefur þar með numið yfir 112 millj­­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka síð­­asta árs. Hagn­að­­ur­inn dróst lít­il­­lega saman milli áranna 2017 og 2018, en hann var 14,4 millj­­arðar króna á fyrra árin­u. 

Í Kveiks­þætti sem sýndur var á RÚV í kvöld kom fram að vís­bend­ingar séu um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inni­heldur meðal ann­ars tvo ráð­herra í Namib­íu, séu mútu­greiðslur og að við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­íku­land­inu séu skýr dæmi um spill­ing­u. 

Auglýsing
Með fram­ferði sínu í við­skiptum í Namibíu er Sam­herji grun­aður um að hafa kom­ist yfir kvóta með áður­nefndum mútu­greiðslum og að hafa komið ávinn­ingi af veiðum undan svo að fullir skattar þyrfti ekki að greið­ast til nær­sam­fé­lags­ins í Namib­íu. 

Eiga í óskyldum greinum

Sam­herji hf. keypti stóran hlut í Olís fyrir nokkrum árum. Það félag rann síðan saman við smá­söluris­ann Haga og í kjöl­farið eign­að­ist Sam­herji alls 9,26 pró­sent hlut í Hög­um. Í síð­ustu viku var greint frá því að Sam­herji hefði selt helm­ing hluta­bréfa sinna í Högum og að eftir við­skiptin standi eign­ar­hlutur sam­stæð­unnar í 4,22 pró­sent­u­m. 

Sam­herji Hold­ing er líka stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­­­skip, með 27,1 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Bald­vin Þor­­­­steins­­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri við­­­skipta­­­þró­unar hjá sam­stæð­unni, er stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Eim­­­skips og í jan­úar í ár var Vil­helm Már Þor­­­steins­­­son, frændi hans, ráð­inn sem for­­­stjóri skipa­­­fé­lags­ins. 

Helstu eig­endur og stjórn­­endur Sam­herja eru frænd­­­­­urn­ir, for­­­­­stjór­inn Þor­­­­­steinn Már Bald­vins­­­­­son og útgerð­­­­­ar­­­­­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­­­­­son. Þeir eiga sam­tals 65,4 pró­­sent í sam­­stæð­unni. Helga S. Guð­­munds­dótt­ir, fyrr­ver­andi eig­in­­kona Þor­­steins Más, á 21,3 pró­­sent. Til við­­bótar á félagið Bliki ehf. 11,7 pró­­sent hlut í Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unn­i. Fram­In­vest ­Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Fær­eyj­­um. Þor­­steinn Már er helsti skráði stjórn­­andi þess félags.

Auk þess er SVN eigna­fé­lag, félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, lang stærsti einka­fjár­festir­inn í Sjóvá með 13,97 pró­sent hlut. Sam­herji á 44,6 pró­sent í eigu Sam­herja auk þess sem Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni. Þor­­steinn Már er stjórn­­­ar­­for­­maður Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. 

Þá er Sam­herji líka stór eig­andi í Jarð­bor­unum í gegnum Kald­bak ehf. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent