Esau og Shanghala báðir búnir að segja af sér ráðherraembætti

Þeir tveir ráðherrar Namibíu sem sagðir eru hafa þegið háar mútugreiðslur frá Samherja í skiptum fyrir að úthluta þeim kvóta hafa báðir sagt af sér.

Sacky Shanghala.
Sacky Shanghala.
Auglýsing

Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, og Sacky Shang­hala, dóms­mála­ráð­herra lands­ins, hafa báðir sagt af sér emb­ætt­i. 

Það ger­ist í kjöl­far þess að Hage Gein­gob, for­seti Namib­íu, lýsti því yfir að þeir þyrftu að hverfa úr rík­is­stjórn­inni og að hann ætl­aði sér að reka þá úr henni. Frá þessu er greint á namibíska frétta­miðl­inum Namibian Sun. 

Fyrr í dag var greint frá því að Gein­gob væri kom­inn með­ nóg af ásök­unum um spill­ingu á hendur ráð­herr­unum tveimur og að þeir yrðu að víkja úr rík­­is­­stjórn.

Auglýsing
Í gær­kvöldi var opin­ber­að, í ítar­legri umfjöll­un, að hópur sem inn­i­heldur meðal ann­­ars Shangala og Esau hefði fengið 1,4 millj­arða króna hið minnsta greiddan frá Sam­herja á und­an­­förnum árum. Auk þess hefði ráð­herra í Angóla fengið greiðsl­­ur. 

Í sér­­­stökum tvö­­­földum Kveiks­þætti sem sýndur var á RÚV í gær­kvöld kom fram að vís­bend­ingar væru um að þarna væri um mút­u­greiðslur að ræða til að kom­­ast yfir kvóta í land­inu á sem ódýrastan hátt. Umfjöll­unin var unnin í sam­­starfi KveiksStund­­ar­innar, Al Jazeera og Wik­i­­leaks.

Þar sagði einnig að starfs­hættir Sam­herja í Namib­­íu, og þeirra sem fyr­ir­tækið á að hafa greitt mútur til, hefðu verið til rann­­sóknar hjá þremur eft­ir­lits­­stofn­unum í land­inu, meðal ann­­ars spill­ing­­ar­lög­regl­unni þar. Auk þess eru yfir­­völd á Íslandi og í Nor­egi með­­vituð um mál­ið. 

Umfjöll­unin er byggð á þús­undum skjala og tölvu­­póst­­­sam­­skipta starfs­­manna Sam­herja þar sem starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins, eins þess stærsta á Íslandi, í Namibíu síð­­ast­lið­inn tæpan ára­tug er til umræðu. Gögn­unum var lekið til Wik­i­­leaks og Kveikur hef­­ur, ásamt Stund­inni, unnið ítar­­lega umfjöllun úr þeim. 

Auk þess var í Kveik birt við­­tal við Jóhannes Stef­áns­­son, sem var verk­efna­­stjóri Sam­herja í Namibíu fram á árið 2016, þar sem hann við­ur­kenndi að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í land­inu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a.

Jóhannes sagði í Kveik að hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema án aðkomu Þor­­steins Más Bald­vins­­son­­ar, for­­stjóra Sam­herja. Þar kall­aði hann starf­­semi Sam­herja í Namibíu „skipu­lagða glæp­a­­starf­­semi“ þar sem fyr­ir­tækið græði á auð­lindum lands­ins en hafi svo fært alla pen­ing­anna sem það græddi út úr því til að fjár­­­festa ann­­ars staðar í heim­in­­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent