Kristján Þór: Ábyrgðin í svona málum liggur hjá fyrirtækinu sjálfu

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að hann hafi fyrir rúmum fimm árum rétt rekið inn nefið á skrifstofu Samherja og heilsað þremenningunum frá Namibíu og átt við þá spjall um daginn og veginn.

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júlíusson
Auglýsing

Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir í sam­tali við RÚV að það beri aldrei einn ábyrgð í stöðu eins og Sam­herji er kom­inn í. „Það bara liggur í hlut­ar­ins eðli. Ábyrgðin í svona málum liggur hjá fyr­ir­tæk­inu sjálfu. Það gefur alveg auga­leið. Það er fyr­ir­tækið sjálft sem þarf að svara fyrir þær ásak­anir sem bornar eru upp.“

Krist­ján Þór segir Kveiks­þátt­inn í gær, þar sem fjallað er um greiðslur Sam­herja til stjórn­mála­manna og hátt settra emb­ætt­is­manna í Namibíu hafa verið mjög slá­andi. Hann segir það vera klárt mál að þessar upp­lýs­ingar skaði íslenskan sjáv­ar­út­veg. Mik­il­vægt sé að málið verði rann­sak­að.

Hann seg­ist enn fremur ekki hafa haft afskipti af Sam­herja, rekstri eða öðru, frá því hann hætti í stjórn fyrir tæpum tveimur ára­tug­um. „En auð­vitað hefur maður taugar til fyr­ir­tæk­is­ins og starf­sem­innar fyrir norð­an. Eðli­lega, þetta er stór partur af norð­lensku sam­fé­lag­i.“

Auglýsing

„Ég hef engin afskipti af þessu eða upp­lýs­ingar um við­skipti“

Í frétt Stund­ar­innar í gær kom fram að Krist­ján Þór hefði í ágúst árið 2014, en þá gegndi hann emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra, komið inn á fund með þre­menn­ing­unum frá Namibíu sem unnu að því gegn mútu­greiðslum að útvega Sam­herja kvóta í land­inu. Fund­ur­inn hefði verið hald­inn í höf­uð­stöðvum Sam­herja í turn­inum í Borg­ar­túni í Reykja­vík og hefði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, kynnt Krist­ján Þór sem „sinn mann“ í rík­is­stjórn­inni. Þessu heldur Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri útgerðar Sam­herja í Namib­íu, fram í frétt Stund­ar­inn­ar.

Krist­ján Þór segir við RÚV að fyrir rúmum fimm árum hafi hann rekið inn nefið á skrif­stof­una og heilsað þessum mönnum og átt við þá spjall um dag­inn og veg­inn. „En grund­vall­ar­at­riði í þessum málum fyrir mig er að ég hef engin afskipti af þessu eða upp­lýs­ingar um við­skipti eða neitt því um líkt og þar af leið­andi hef ég ekk­ert að fela í þessum efn­um,“ segir Krist­ján. Hann segir það algjöra til­viljun að hann hafi verið á skrif­stofu Sam­herja á sama tima og þessir menn.

„Þannig hitt­ist bara á í þessu til­felli að ég á per­sónu­legan fund með ein­stak­lingi sem ég hef þekkt í langan tíma um allt önnur mál að þá rekst ég á þessa ein­stak­linga,“ segir Krist­ján Þór og þver­tekur við RÚV á sama tíma fyrir það að hafa verið boð­aður til fundar á skrif­stof­unni á þessum tíma. Hann seg­ist ekk­ert hafa heyrt af við­skipt­unum sem fjallað er um í Kveik fyrr en hann hafi fengið upp­lýs­inga­beiðni frá Stund­inni í síð­ustu viku.

Sam­herj­a­menn verða að svara sjálfir fyrir sig

Krist­ján seg­ist hafa heyrt í nokkrum starfs­mönnum Sam­herja und­an­farna daga. Meðal ann­ars Þor­steini Má Vil­helms­syni for­stjóra. „Ég var bara að spyrja hvernig honum liði ein­fald­lega,“ segir Krist­ján Þór og bætir því við að Sam­herj­a­menn verði að svara því sjálfir hvað átt var við þegar fram kom að þeir hefðu sagt að Krist­ján Þór væri þeirra mað­ur. 

„Því verða þeir að svara sjálf­ir. Ég hef hingað til bara litið á mig sem minn eigin og minnar fjösl­kyldu og er þekktur fyrir flest annað en að vera mjög und­an­láts­sam­ur. Ég hef nú frekar orð á mér fyrir að vera frekar stífur í fram­göng­u,“ segir hann í sam­tali við RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent