Skattrannsóknarstjóri fékk nýlega gögn frá namibískum yfirvöldum

Embætti skattrannsóknarstjóra hefur bæst í hóp fjölmargra annarra rannsóknaraðila, hérlendis og erlendis, sem eru að skoða gögn um möguleg íslensk lögbrot í Namibíu. Opinberað var í gær að Samherji liggi undir grun um að hafa framið lögbrot.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Auglýsing

„Skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafa nýlega borist gögn frá namibískum yfir­völd­um. Ekk­ert frekar er hægt að upp­lýsa um það á þessu stigi, þ. á m. að hverjum þau bein­ast.“ 

Þetta segir í svari Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um hvort að emb­ætt­inu hafi borist gögn sem tengj­ast meintum skattsvikum íslensks fyr­ir­tækis í Namib­íu. Bryndis seg­ist hins vegar ekki geta tjáð sig um ein­stök mál. 

Í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik sem sýndur var í gær­kvöldi kom meðal ann­­ars fram að vís­bend­ingar væru um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­­­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inn­­i­heldur meðal ann­­­ars tvo ráð­herra í Namib­­­íu, séu mút­­u­greiðslur og að við­­­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­ík­­u­land­inu séu skýr dæmi um spill­ing­u. 

Um­­fjöll­unin var unnin í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­innar, Al Jazeera og Wiki­leaks.

Þar kom einnig fram að rök­studdur grunur sé um stór­fellda skatta­snið­göngu Sam­herja við að koma ágóð­anum af þeim við­skiptum sem fyr­ir­tækið stund­aði þar undan og til skatta­skjóla. Þá liggur fyrir að norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­is­ins, stöðv­aði við­skipti við félög tengd Sam­herja á Kýpur og Mars­hall-eyjum vegna þess að reglur um varnir gegn pen­inga­þvætti voru ekki upp­fyllt. Þau mál eru til skoð­unar hjá norsku efna­hags­brota­deild­inni og deildar emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara þar í landi, sam­kvæmt Stund­inni.

Kjarn­inn greindi frá því í gær­kvöldi að Jóhannes Stef­áns­­son, sem var verk­efna­stjóri Sam­herja í Namibíu fram til árs­ins 2016, og steig fram í Kveik-þætti kvölds­ins, hefði rætt við starfs­­menn hér­­aðs­sak­­sókn­­ara í gær. 

Auglýsing
„Við munum taka efni þessa þáttar til skoð­unar og metum það sem þarna kemur fram ásamt öðrum gögnum sem emb­ættið hefur aflað sér til þess að taka afstöðu til þess sem verður gert í fram­hald­in­u,“ sagði Ólafur Þór Hauks­­son hér­­aðs­sak­­sókn­­ari í sam­tali við Kjarn­ann aðspurður um hvort að emb­ættið sé með meintar mút­ur­greiðslur og ýmis önnur meint lög­­brot, eins pen­inga­þvætti og skattsvik, Sam­herja í Namibíu og Nor­egi til skoð­un­­ar.  

Jóhannes við­ur­kenndi í Kveiks-þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­­völd í Namib­­­íu, hefði fengið laga­­­lega stöðu upp­­­­­ljóstr­­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­­a. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent