Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna samskipta við Samherja í aðdraganda umfjöllunar sem birtist í gærkvöldi um viðskipti fyrirtækisins í Namibíu. Undir hana skrifar Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri RÚV og ritstjóri Kveiks.
Í henni segir að vegna fullyrðinga forstjóra Samherja hf. í fjölmiðlum um að RÚV hafi nálgast fyrirtækið á fölskum forsendum, hafnað fundarbeiðni og ekki sinnt hlutleysisskyldu sinni við vinnslu á fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld telji RÚV ástæðu til að birta öll samskipti fréttamanna og fréttastjóra RÚV við Samherja síðustu vikur.
Samskiptin má finna á vef Kveiks.
Fyrsta viðtalsbeiðni fréttamanna Kveiks hafi verið send forstjóra Samherja þann 15. október síðastliðinn með þeim orðum að til stæði „að fjalla um þróunaraðstoð Íslendinga í sjávarútvegi og aukin umsvif íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja erlendis.“ Þeirri beiðni hafi verið hafnað samdægurs með þeim orðum að forstjóri Samherja sæi ekki ástæðu til að fara í slíkt viðtal.
Önnur viðtalsbeiðni, með ítarlegum útskýringum um efnisatriði og spurningum til Samherja, hafi svo verið send 25. október síðastliðinn en þar segi meðal annars: „Meðal gagna sem við byggjum umfjöllunina á eru tölvupóstar, myndir, reikningar og greiðslukvittanir, sem sýna fram á að félög í eigu Samherja hafi greitt aðilum tengdum sjávarútvegsráðherra Namibíu umtalsverðar fjárhæðir fyrir aðgengi að fiskveiðikvóta í landinu.“
Gefinn hafi verið rúmur tími til andsvara í samræmi við vinnureglur fréttastofu RÚV en ekkert svar hafi borist frá Samherja.
RÚV hafi svo borist formlegt svar frá Samherja 6. nóvember síðastliðinn þar sem fyrirtækið hafi sagst taka fyrirspurn Kveiks alvarlega og boðið fréttastjóra RÚV, sem ábyrgðarmanni Kveiks, til fundar í Lundúnum til að ræða málið og fá bakgrunnsupplýsingar sem fyrirtækið teldi mikilvægar.
Í svari fréttastjóra til Samherja 7. nóvember síðastliðinn hafi viðtalsbeiðni Kveiks verið ítrekuð, fyrirtækinu boðið að svara spurningum skriflega sem og að koma gögnum til þáttarins. Fundarboði Samherja til fréttastjóra í Lundúnum hafi hins vegar verið hafnað.
Í svari RÚV 9. nóvember síðastliðinn hafi enn verið ítrekuð viðtalsbeiðni Kveiks til Samherja, boð um að veita skrifleg svör eða að koma gögnum á framfæri. Þar hafi einnig sagt: „...fráleitt að halda því fram að fundarboð til London á bak við luktar dyr teljist eðlilegt eða gegnsætt ferli sem íslenskur fjölmiðill geti fallist á að taka þátt í.“
Samherji hafi boðist í kjölfarið til að hitta fulltrúa RÚV á fundi í Reykjavík og hafi sagt í svari sínu 10. nóvember síðastliðinn hafa viðkvæmar upplýsingar og upplýsingar um mögulega ólögmæta háttsemi fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins. Þessum upplýsingum sé hins vegar ekki hægt að deila með almenningi að svo stöddu.
Í svari RÚV 11. nóvember segir: „Fréttamenn Kveiks eru, sem fyrr, reiðubúnir að hitta forstjóra Samherja á fundi til að fá svör við spurningum, gögn sem tengjast málinu eða yfirlýsingu frá fyrirtækinu svo koma megi andsvari Samherja á framfæri í fyrirhugaðri umfjöllun. Fundurinn verður hins vegar að vera opinn og gegnsær og ekki háður skilyrðum Samherja.“
Bréf og tölvupóstar staðfesti að Kveikur hafi ítrekað reynt að leita svara og viðbragða hjá Samherja. Hann hafi veitt ítarlegar upplýsingar um umfjöllunarefnið og sett fram efnislegar spurningar í viðtalsbeiðni til fyrirtækisins 25. október síðastliðinn. Vinnubrögð RÚV og sá tími sem fyrirtækinu gafst til andsvara sé fyllilega í samræmi við lögbundar skyldur samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið og reglum sem hvíla á blaða- og fréttamönnum.