„Orðræða sumra stjórnmálamanna í umræðunni er í mínum huga ekkert annað en aðför að réttarríkinu og með góðum rökum má kalla það pólitíska spillingu.“
Þetta segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag.
Þar fjallar hann um þátt Kveiks, þar sem fram komu ásakanir um alvarleg brot Samherja, og segir Brynjar að þátturinn hafi eðlilega kveikt upp neikvæðar tilfinningar landsmanna. Hann segir að þegar slíkt gerist hoppi Samfylkingin strax á vagn sýndarmennskunnar og slái í hvert sinn eigið met.
Lesa
Vonar að „þessu fólki“ verði ekki falið mikilvægt vald í framtíðinni
Hann segir að Íslendingar hafi stofnanir til að rannsaka mál og ákæra og dæma eftir atvikum. Mikilvægt sé að þessar stofnanir fái að vinna sitt verk án upphrópana og sýndarmennsku stjórnamálamanna og telur Brynjar að landinn verði að læra af reynslunni í þeim efnum.
„Svo er ég alltaf jafn undrandi á að kjörnir fulltrúar leggi sérstaka áherslu á í málflutningi sínum að sverta Ísland um allan heim. Er Samfylkingin kominn fram úr Pírötum í þeim efnum. Vona innilega að þessu fólki verði ekki falið mikilvægt vald í framtíðinni til að gæta hagsmuna þjóðarinnar,“ skrifar hann að lokum.
Ósammála um hvort Ísland væri spillingarbæli
Kjarninn greindi frá því Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, hefðu tekist á í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær.
Logi sagði að hann óttaðist að Ísland væri að teiknast upp sem spillingarbæli í augum umheimsins.
Bjarni svaraði og sagði að honum fyndist það alvarlegt mál þegar formaður stjórnmálaflokks stigi í pontu Alþingis og teldi það rétta lýsingu á Íslandi að því væri líkt við spillingarbæli.
Vill að eignir Samherja verði frystar
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í stöðuuppfærslu á Facebook í fyrradag að í hennar huga kæmi ekkert annað til greina en að eignir Samherja yrðu frystar núna strax á meðan á rannsókn stæði. „Um er að ræða rannsókn á mögulegu mútubroti, peningaþvætti og skattalagabrotum. Hér er ekki um einhverja sjoppu að ræða heldur milljarðafyrirtæki með umtalsverð umsvif í fjölda ríkja og skattaskjólssvæðum.“
Hún minnti auk þess á að eignir dægurlagahljómsveitarinnar Sigurrósar hefðu verið frystar vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum hljómsveitarmeðlima sem varðaði nokkra tugi eða hundruð milljóna.