Lúðvík Elíasson hefur verið ráðinn í stöðu forstöðumanns rannsókna og spáa á sviði hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands.
Þetta kemur fram á vef Seðlabankans í dag.
Lúðvík er með doktorspróf í hagfræði frá University of Washington í Seattle í Bandaríkjunum frá árinu 2001 en hann lauk mastersnámi við sama skóla árið 1997 og grunnnámi í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 1994.
Lúðvík hefur starfað á hagfræði- og peningastefnusviði bankans frá mars 2018. Þar áður var hann hagfræðingur á fjármálastöðugleikasviði bankans tímabilið 2012 til 2018. Hann starfaði einnig á hagfræði- og peningastefnusviði bankans tímabilið 2001 til 2005 og hefur einnig starfað í fjármálakerfinu, í fjármálaráðuneytinu og í háskólasamfélaginu, samkvæmt tilkynningu Seðlabankans.