Reykjavíkurborg hefur beðið foreldra og forráðamenn barna að sækja börn sína strax að skóladegi loknum á morgun, þriðjudag, svo að allir, börn, foreldrar og starfsfólk skóla og leikskóla, geti verið komnir til síns heima áður en ofsaveður skellur á, um 15:00, eins og spár Veðsturstofu Íslands gera ráð fyrir.
Þá verður allt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf fellt niður, auk þess sem sundlaugar, útibú Borgarbókasafnsins og söfn á vegum borgarinnar verða lokuð eftir klukkan 14:00.
„Lokanir skóla og stofnana eru tilkomnar vegna öryggisráðstafana en enginn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðri í fjölmiðlum og fylgja tilmælum yfirvalda,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. „Enginn ætti að vera á ferli eftir klukkan 15 á morgun nema brýn nauðsyn beri til.“
Tilkynning Reykjavíkurborg, eins og hún birtist á vef borgarinnar, fer hér að neðan:
Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun vegna óveðursins sem spáð er. Foreldrar og forráðamenn barna eru beðnir um að sækja börn sín strax að skóladegi loknum til að tryggt sé að allir, börn, foreldar og starfsfólk geti náð heim til sín áður en veðrið skellur á. Foreldrar leikskólabarna sæki börn sín fyrir kl. 15.
„Allt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í Reykjavík fellur niður svo og starf skólahljómsveita. Eldri grunnskólanemendur fara því beint heim eftir skóladag og eru foreldrar beðnir um að sjá til þess að þeir séu ekki á ferli þegar og eftir að veðrið skellur á.
Akstursþjónusta fatlaðra mun aka heim þeim skólabörnum sem þeirrar þjónustu njóta, strax að loknum skóladegi.
Þá munu sundlaugar, útibú Borgarbókasafnsins og söfn á vegum Reykjavíkurborgar verða lokuð eftir kl. 14 á morgun.
Fólk er beðið um að huga að lausamunum sem geta fokið og minnir Sorphirða Reykjavíkur íbúa sérstaklega á að huga vel að sorpílátum sínum og tryggja að þau fjúki ekki.
Lokanir skóla og stofnana eru tilkomnar vegna öryggisráðstafana en enginn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðri í fjölmiðlum og fylgja tilmælum yfirvalda.
Appelsínugul viðvörun þýðir að það séu miðlungs eða miklar líkur á veðri sem geti valdið miklum samfélagslegum áhrifum, tjóni eða slysum og hugsanlega ógnað lífi og limum ef aðgát er ekki höfð.“