Stjórn Leikfélags Reykjavíkur hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum um stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins. Stefnt er að því að viðkomandi hefji störf við undirbúning leikársins 2021 til 2022 í ársbyrjun 2021 en taki svo formlega við stjórn leikhússins í júlí 2021.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikhúsinu.
„Stjórn LR vill vanda til ráðningarferlis leikhússtjóra til að tryggja sem öflugastan hóp umsækjenda og eðlilega samfellu í því skapandi og góða starfi sem fer fram í Borgarleikhúsinu. Þessi ráðstöfun gefur nýjum leikhússtjóra færi á að koma fyrr að vali verkefna, ráðningu leikara og leikstjóra. Þá telur stjórn LR einnig að aukinn fyrirvari á ráðningu leikhússtjóra auðveldi umsækjendum sem þegar eru í verkefnum heima eða erlendis að skipuleggja framtíð sína og auki þannig líkurnar á áhugaverðum umsóknum,“ segir í tilkynningunni.
Starf leikhússtjóra Borgaleikhússins verður auglýst til umsóknar 16. janúar næstkomandi og rennur umsóknarfrestur út tveimur vikum síðar eða 30. janúar 2020.
Vilja undirbúa ráðningu eftirmanns Kristínar tímanlega
Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur, segir að Borgarleikhúsið sé þekkt fyrir að vera framsækið leikhús og hafi gengið afar vel undanfarin ár undir forystu Kristínar Eysteinsdóttur. „Seinna ráðningartímabil hennar rennur út í júlí 2021, en stjórn LR vill undirbúa ráðningu eftirmanns hennar tímanlega. Stjórnin telur mikilvægt að laða að hæfileikaríkt sviðslistafólk og fara ótroðnar slóðir við ráðningu stjórnenda, ekki síst í ljósi þess hve starfsumhverfi þeirra hefur breyst að undanförnu með fjölgun tækifæra á alþjóðavettvangi. Þannig telur stjórnin að breytt tilhögun við ráðningu leikhússtjóra auki líkurnar á áhugaverðum umsóknum og tryggi að listrænn metnaður verði héðan í frá sem hingað til í algjöru fyrirrúmi.“
Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins, telur það vera mikið heillaskref að staða Borgarleikhússtjóra sé auglýst með svona góðum fyrirvara. „Það ber vott um faglega nálgun stjórnar enda eru sambærilegar stöður erlendis auglýstar að minnsta kosti ári áður en viðkomandi aðili tekur við. Þetta er gert til að nýr leikhússtjóri fái tækifæri til að undirbúa vel komu sína í leikhúsið. Ég mun leggja mig alla fram við að styðja eftirmann minn í þeim undirbúningi, enda er það mér mikið hjartans mál að leikhússtjóraskiptin séu fagleg og vel að þeim staðið. Með þessu móti getur nýr leikhússtjóri frá fyrsta degi sett skýran svip á starfsemi leikhússins.“