Borgarleikhúsið auglýsir eftir umsóknum um stöðu leikhússtjóra

Stjórn Leikfélags Reykjavíkur hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum um stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins.

Borgarleikhúsið
Auglýsing

Stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur hefur ákveðið að aug­lýsa eftir umsóknum um stöðu leik­hús­stjóra Borg­ar­leik­húss­ins. Stefnt er að því að við­kom­andi hefji störf við und­ir­bún­ing leik­árs­ins 2021 til 2022 í árs­byrjun 2021 en taki svo form­lega við stjórn leik­húss­ins í júlí 2021.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá leik­hús­inu.

„Stjórn LR vill vanda til ráðn­ing­ar­ferlis leik­hús­stjóra til að tryggja sem öfl­ugastan hóp umsækj­enda og eðli­lega sam­fellu í því skap­andi og góða starfi sem fer fram í Borg­ar­leik­hús­inu. Þessi ráð­stöfun gefur nýjum leik­hús­stjóra færi á að koma fyrr að vali verk­efna, ráðn­ingu leik­ara og leik­stjóra. Þá telur stjórn LR einnig að auk­inn fyr­ir­vari á ráðn­ingu leik­hús­stjóra auð­veldi umsækj­endum sem þegar eru í verk­efnum heima eða erlendis að skipu­leggja fram­tíð sína og auki þannig lík­urnar á áhuga­verðum umsókn­um,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Starf leik­hús­stjóra Borga­leik­húss­ins verður aug­lýst til umsóknar 16. jan­úar næst­kom­andi og rennur umsókn­ar­frestur út tveimur vikum síðar eða 30. jan­úar 2020.

Vilja und­ir­búa ráðn­ingu eft­ir­manns Krist­ínar tím­an­lega

Egg­ert Bene­dikt Guð­munds­son, for­maður stjórnar Leik­fé­lags Reykja­vík­ur, segir að Borg­ar­leik­húsið sé þekkt fyrir að vera fram­sækið leik­hús og hafi gengið afar vel und­an­farin ár undir for­ystu Krist­ínar Eysteins­dótt­ur. „Seinna ráðn­ing­ar­tíma­bil hennar rennur út í júlí 2021, en stjórn LR vill und­ir­búa ráðn­ingu eft­ir­manns hennar tím­an­lega. Stjórnin telur mik­il­vægt að laða að hæfi­leik­a­ríkt sviðs­lista­fólk og fara ótroðnar slóðir við ráðn­ingu stjórn­enda, ekki síst í ljósi þess hve starfs­um­hverfi þeirra hefur breyst að und­an­förnu með fjölgun tæki­færa á alþjóða­vett­vangi. Þannig telur stjórnin að breytt til­högun við ráðn­ingu leik­hús­stjóra auki lík­urnar á áhuga­verðum umsóknum og tryggi að list­rænn metn­aður verði héðan í frá sem hingað til í algjöru fyr­ir­rúmi.“

Kristín Eysteins­dótt­ir, leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins, telur það vera mikið heilla­skref að staða Borg­ar­leik­hús­stjóra sé aug­lýst með svona góðum fyr­ir­vara. „Það ber vott um fag­lega nálgun stjórnar enda eru sam­bæri­legar stöður erlendis aug­lýstar að minnsta kosti ári áður en við­kom­andi aðili tekur við.  Þetta er gert til að nýr leik­hús­stjóri fái tæki­færi til að und­ir­búa vel komu sína í leik­hús­ið. Ég mun leggja mig alla fram við að styðja eft­ir­mann minn í þeim und­ir­bún­ingi, enda er það mér mikið hjart­ans mál að leik­hús­stjóra­skiptin séu fag­leg og vel að þeim stað­ið. Með þessu móti getur nýr leik­hús­stjóri frá fyrsta degi sett skýran svip á starf­semi leik­húss­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent