Kvenréttindafélag Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar að mæla með styttingu opnunartíma leikskóla borgarinnar, að þeim verði lokað klukkan 16:30 í stað 17:00. Þetta kemur fram í opnu bréfi félagsins til borgarráðs.
Í bréfinu minnir félagið á að öflug starfsemi leikskóla sé forsenda þess að Ísland hafi náð svo langt sem raun ber vitni í að tryggja jafnrétti kynjanna. „Jafnrétti kvenna og karla verður aldrei náð fyrr en konur hafa fjárhagslegt sjálfstæði, og konur ná ekki fjárhagslegu sjálfstæði ef þær eru bundnar inni á heimilum í ólaunuðu starfi.“
Full þátttaka kvenna á íslenskum vinnumarkaði sé ekki aðeins forsenda fyrir kvenfrelsi, heldur einnig fyrir hagsæld þjóðarinnar þar sem samfélagið reiði sig á að „við öll tökum virkan þátt í atvinnulífinu og leggjum okkar af mörkum. Í stað þess að skerða þjónustu leikskóla borgarinnar væri nærtækast ef Reykjavíkurborg og sveitarfélögin öll á landinu tækju höndum saman og hækkuðu laun alls starfsfólks í leikskólunum, langflest konur, til muna og borgi þeim verðskulduð laun.“
Mun líklega bitna frekar á konum en körlum
Einnig er bent á í bréfinu að útivinnandi foreldrar vinni flestir fullan vinnudag til að geta lagt sitt til samfélagsins og í mörgum tilfellum til þess að eiga til hnífs og skeiðar. Foreldrar sé alla jafna að gera sitt allra besta til að láta púsluspilið ganga upp með það að markmiði að geta varið sem mestum gæðatíma með börnum sínum. Að ala á samviskubiti foreldra varðandi lengd þess tíma sem börnin eru í leikskóla á hverjum degi sé lúalegt bragð sem beinist meira að mæðrum en feðrum, þar sem það virðist enn vera svo að þegar taka þarf ákvörðun um að skera niður vinnu til að sinna börnum séu það mæður í flestum tilvikum sem taka það á sig með tilheyrandi tekjuskerðingu.
„Sú ákvörðun að stytta opnunartíma leikskóla Reykjavíkur er líkleg til að bitna mun meira á konum en á körlum. Jafnt fæðingarorlof og dagvistun barna tryggir jafnræði atvinnuþátttöku kvenna og karla og eykur hagsæld hér á landi. Leikskólar eru einn lykilþátturinn til að tryggja jafnrétti kynjanna. Með því að skerða dagvistunarúrræði er skref tekið afturábak í jafnréttisbaráttunni,“ segir í bréfi Kvenréttindafélags Íslands.
Félagið hvetur enn fremur borgarráð til að hafna þessari tillögu og ræða í kjölfarið hvernig Reykjavíkurborg geti unnið að „raunverulegum kjarabótum og bættu starfsumhverfi fyrir starfsfólk í leikskólum borgarinnar og á sama tíma brúað bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunar.“