Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV). Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.
Í henni segir jafnframt að í lok desember síðastliðins hafi fregnir borist af alvarlegum lungnasýkingum í Wuhan-borg í Kína. Í kjölfarið hafi verið staðfest að um áður óþekkt kórónaveiruafbrigði væri að ræða, sem nú kallist 2019-nCoV. Staðfest sé að veiran smitast á milli manna og að hún geti valdið alvarlegum veikindum. Faraldurinn breiðist hratt út en enn sem komið er hafi flest tilfellin greinst í Kína.
Samstarf stofnana aukið
„Í ljósi þessa, og á grundvelli áhættumats Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Sóttvarnarstofnunar ESB, hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru.
Óvissustigi er lýst þegar grunur vaknar um að yfirvofandi sé atburður sem hefur áhrif á lýðheilsu. Í kjölfarið er samstarf stofnana aukið, sem og upplýsingamiðlun. Vöktun er efld, áhættumat endurskoðað svo oft sem þurfa þykir og birgðastaða nauðsynlegra bjarga er könnuð og skráð. Farið er yfir viðbragðsáætlanir og fyrirliggjandi verkferla,“ segir í tilkynningunni.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðum almannavarna og landlæknis.
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna...
Posted by Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra on Monday, January 27, 2020