Efling hefur boðað til verkfallsaðgerða næstkomandi þriðjudag frá hádegi til miðnættis en það er fyrsti dagurinn í boðuðum verkfallsaðgerðum. Komi til verkfalla mun það hafa mest áhrif á leikskóla- og velferðarþjónustu á vegum Reykjavíkurborgar auk sorphirðu, vetrarþjónustu og umhirðu borgarlandsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg í dag.
Þá segir að starfsfólk Eflingar telji um 1.850 af um 9.000 starfsmönnum borgarinnar. Eflingarfólk starfi í fjölbreyttum störfum á 129 starfsstöðum hjá Reykjavíkurborg. Um 1.000 starfi á skóla- og frístundasviði, þar af mikill meirihluti í leikskólunum. Þá starfi um 700 úr Eflingu við velferðarþjónustu borgarinnar.
Starfsfólk Eflingar í skólum um 1.000 talsins
Samkvæmt Reykjavíkurborg er starfsfólk Eflingar í skólum á vegum Reykjavíkurborgar um 1.000. Ef til vinnustöðvunar kemur muni það fyrst og fremst leiða til skerðingar á þjónustu leikskóla í Reykjavík en þeir eru 63 talsins.
Misjafnt sé eftir leikskólum hversu mikil skerðingin verður en ljóst sé að í mörgum skólum verður hún veruleg. Matarþjónusta verði með ólíkum hætti milli leikskóla. Stjórnendur leikskólanna muni upplýsa forráðamenn leikskólabarna um þá þjónustu sem verður í boði á meðan verkfallsaðgerðum stendur.
Greiða ekki gjöld vegna verkfalla
Foreldrar greiða ekki gjöld fyrir þá daga sem börn geta ekki sótt leikskóla vegna verkfalls eða þjónustuskerðingar s.s. matarþjónustu, samkvæmt borginni.
Komi til verkfalls muni það hafa óveruleg áhrif á grunnskóla Reykjavíkur. Skólastjórnendur grunnskóla Reykjavíkur muni upplýsa nemendur og forráðamenn nánar eftir því sem við á. Þjónusta frístundaheimila verði óbreytt.
Sótt um undanþágu fyrir um 245 stöðugili
Þá kemur enn fremur fram í tilkynningunni að velferðarsvið hafi sótt um undanþágu fyrir starfsfólk Eflingar sem sinnir viðkvæmustu þjónustunni sem snýr að umönnun fatlaðs fólks, aldraðra á hjúkrunarheimilum og í heimahúsum, barna og þeirra sem þurfa á neyðarþjónustu að halda í gistiskýlum. Ekki verði hægt að tryggja heilbrigði og öryggi einstaklinga sem þurfa ákveðna umönnun eða úrræði ef undanþága fæst ekki.
Sótt hafi verið um undanþágu fyrir um 245 stöðugildi af um 450 hjá velferðarsviði á eftirfarandi starfsstöðum:
- Tvö hjúkrunarheimili Droplaugarstaðir (ásamt Foldabæ) og Seljahlíð
- 13 starfsstaðir þar sem rekið er húsnæði fyrir fatlað fólk (íbúðakjarnar og herbergjasambýli)
- Sex starfsstaðir sem sinna málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
- Nauðsynleg öryggisþjónusta á heimilum
- Þjónustuíbúðir á fimm stöðum
- Framleiðslueldhús Lindargötu sem sér um að elda og pakka heimsendum mat.
- Vistheimilið Mánaberg
Sorphirða frestast
„Fyrirhugað verkfall mun t.a.m. hafa þau áhrif á velferðarþjónustu borgarinnar að ekki verður boðið upp á mat og kaffiveitingar í níu félagsmiðstöðvum fyrir aldraða auk þess sem heimaþjónusta á borð við þrif frestast á verkfallsdögum. Dagdvöl fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum sem rekin hefur verið í Þorraseli mun loka en þar eru að jafnaði 40 einstaklingar sem njóta þjónustunnar. Þá mun ekki verða hádegismatur í boði fyrir fatlað fólk sem starfar og dvelur í Iðjubergi og Gylfaflöt,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.
Jafnfram mun á boðuðum verkfallsdögum sorphirða frestast, samkvæmt borginni. Þá verði hreinsun í kringum grenndarstöðvar ekki sinnt auk ýmissar umhirðu í borgarlandinu. Öryggis- og bilanavakt borgarlandsins fellur niður. Snjóhreinsun og hálkuvarnir á aðskildum hjólaleiðum og stofnanalóðum, til að mynda við leik og grunnskóla fellur enn fremur niður.