Alþýðusamband Íslands og Neytendasamtökin hafa stofnað baráttusamtök gegn smálánastarfsemi, að því er fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá þeim. Markmiðið er annars vegar að aðstoða þolendur smálánastarfsemi og hins vegar að girða fyrir það að slík starfsemi fái þrifist.
Samkvæmt ASÍ og Neytendasamtökunum má ætla að þúsundir einstaklinga og fjölskyldna hafi goldið það dýru verði að festast í neti smálánafyrirtækja sem níðast skipulega á þeim sem höllum fæti standa. „Að stöðva þessa starfsemi er velferðarmál og barátta gegn fjárhagslegu ofbeldi!“
ASÍ og NS hafa ákveðið að stofna málsvarnarsjóð fyrir þolendur smálána sem hafa ofgreitt ólögleg lán. Þau ætla að kortleggja hvaða fyrirtæki það eru sem þjónusta smálánafyrirtæki og auðvelda starfsemina. „Almenningur þarf að vera upplýstur um hvaða fyrirtæki það eru,“ segir í tilkynningunni. Þá ætla þau að þrýsta á að stjórnvöld axli ábyrgð og aðstoði þolendur með skipulögðum hætti og beiti sér markvisst gegn starfsemi smálána.
„Það er óþolandi að fyrirtæki og fjármálastofnanir hafi séð sér hag í því að þjónusta og aðstoða smálánafyrirtæki. Þar má nefna CreditInfo sem hefur skráð ólögleg lán á vanskilaskrá og Almenna innheimtu ehf. sem innheimtir smálán af fordæmalausri hörku. Þá eru fleiri fyrirtæki og sem styðja við smálánafyrirtæki til skoðunar,“ segir í tilkynningunni.
Samkvæmt könnun aðildarfélaga ASÍ meðal félagsmanna sinna geta 25 prósent þeirra sem lenda í skuldavanda rakið orsökina til smálána. „Alþýðusamband Íslands mun leggja fjármagn og starfskrafta í þessa baráttu enda kemur starfsemin niður á félagsmönnum í verkalýðshreyfingunni og þeim sem höllum fæti standa í samfélaginu.“
Hér að neðan má sjá dæmi um sögur sem borist hafa samtökunum:
Einstæð móðir af erlendum uppruna í láglaunastarfi leitaði til Neytendasamtakanna. Bæði börn hennar eru langt leiddir fíklar. Dag einn bankaði maður með hafnarboltakylfu uppá hjá henni og skipaði henni að taka smálán til að greiða skuld annars barns hennar. Móðirin gerði það nauðbeygð, gat ekki staðið í skilum með ólögleg lánin og freistaðist til að taka ný lán til að greiða þau gömlu. Það gerði hún endurtekið þar til upphæðin var komin í þær þóknanlegar hæðir fyrir smálánafyrirtækin, sem lokuðu á hana og hófu gegndarlausa innheimtu með skefjalausum kostnaði. Við móðurinni blasir ekkert nema gjaldþrot.
Veikur maður á þrítugs aldri tekur 20.000 króna lán sem hann greiðir ekki á gjalddaga. Mánuðum síðar eru skuldfærðar rúmar 70 þúsund krónur af reikningnum. Heiðvirð félög skuldfæra á gjalddaga, en hlaða ekki kostnaði á lán og skuldfæra svo. Málið tekur svo á þolandann að hann fæst ekki úr rúmi svo vikum skiptir.
Smálánafyrirtækin hafa skuldfært ólöglega af reikningum fólks, samkvæmt samtökunum.
„Ég tók smálán árið 2018 að upphæð 20.000 kr. sem fór í gegnum bankareikninginn minn. Gat ekki borgað á tilsettum tíma og fékk eitt sms um að ég væri með ógreiddann reikning. Í mars 2019 eru allt í einu dregið af reikningi mínum í öðrum banka rúmar 70,000 án frekari aðvaranna.“
„Það er búið að senda mér allskonar frá hraðpeningar.is en ég get hvergi fundið út að það megi vaða í reikninginn hjá fólki og taka út peninga þegar hentar. Og einnig hef ég lesið skilmálana ansi oft en er ekki að komast að þeirri niðurstöðu að það megi.“
Almenn innheimta hótar fólki með vanskilaskrá og afhendir ófullnægjandi gögn, segir í tilkynningunni.
„Ég er bæði búin að hringja og senda tölvupóst og byðja um að fá allar upplysingar um mín lán og upphæðir enn þeir eru ekki búnir að svara. Ég hringdi í gær í Almenna innheimtu og talaði við mann sem sagði þá taka fólk af vanskilaskrá ef ég myndi borga helmingin af upphæðini og semja um rest. ég sagði nei takk og hringdi í ykkur.“
„Ég tók nokkur smálán 2018, og lenti í vanskilum. samdi svo við Almenna innheimtu um greiðslur eftir að hafa lent á vanskilaskrá af því að eitt smálán fór yfir eindaga. Greiddi síðan um 280.000 kr. af ég veit ekki hversu hárri kröfu, og fæ ekkert yfirlit frá þeim, þrátt fyrir að hafa óskað eftir því oft. Fyrst var ég beðinn um að bíða eftir 30 daga úrvinnslu og svo beðinn um að senda skilríki.“
„Ég bara gafst upp á að reyna að leita réttar míns því í öllum tölvupóstum og símtölum vísa alltaf allir á einhvern annan.“