Aldrei fleiri konur nefnt ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu í Kvennaathvarfið

Samtals komu 438 konur í Kvennaathvarfið í viðtöl eða dvöl á síðasta ári. Til viðbótar hittu ráðgjafar athvarfsins 214 einstaklinga í viðtölum í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.

Ofbeldi gegn börnum Mynd: Skjáskot/Myndband um ofbeldi
Auglýsing

Árið 2019 dvöldu 144 konur og 100 börn í Kvenna­at­hvarf­inu. Konur dvöldu í athvarf­inu frá einum degi upp í 236 daga, að með­al­tali í 30 daga. Börn dvöldu í athvarf­inu í frá einum degi upp í 155 daga, að með­al­tali í 39 daga. Að með­al­tali dvöldu 23 íbúar í athvarf­inu á dag, 12 konur og 11 börn.

Þetta kemur fram í tölum frá Kvenna­at­hvarf­inu fyrir árið 2019.

Að auki komu 294 konur í sam­tals 545 við­töl án þess að til dvalar kæmi. Sam­tals komu því 438 konur í athvarfið í við­töl eða dvöl á árinu. Til við­bótar hittu ráð­gjafar athvarfs­ins 214 ein­stak­linga í við­tölum í Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur ofbeld­is.

Auglýsing

27 pró­sent barn­anna höfðu fengið aðstoð

Í til­kynn­ingu frá Kvenna­at­hvarf­inu kemur fram að aldrei hafi fleiri konur nefnt ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu í athvarf­ið. Þá hafi komið fram í svörum kvenn­anna að alls búi 349 börn undir 18 ára að aldri á ofbeld­is­heim­il­unum sem þær koma af.

Ein­ungis 27 pró­sent barn­anna höfðu fengið ein­hverja aðstoð vegna þess ofbeldis sem barnið bjó við á heim­ili sínu en 44 pró­sent kvenn­anna sögðu að barna­vernd hefði verið til­kynnt um ofbeld­ið. Alls voru 12 pró­sent kvenn­anna með lík­am­lega áverka við fyrstu komu í athvarf­ið, eða 23 pró­sent dval­arkvenna og 6 pró­sent kvenna í við­töl­um, en rúm­lega helm­ingur sögðu frá því að hafa ein­hvern tíma hlotið lík­am­lega áverka í sam­band­inu.

Yfir helm­ingur ótt­að­ist um líf sitt

Þá sögð­ust 54 pró­sent hafa ótt­ast um líf sitt í sam­band­inu, 42 pró­sent sögðu lög­reglu hafa komið á vett­vang ofbeld­is­ins í eitt eða fleiri skipti og 15 pró­sent kært ofbeldið til lög­reglu. 

Meiri­hluti, eða 60 pró­sent, þeirra mála var enn í vinnslu en dómur hafði fallið í 5 pró­sent mál­anna, 16 pró­sent kærðra mála hafði verið verið felld nið­ur, 5 pró­sent höfðu fengið nálg­un­ar­bann og 5 pró­sent neyð­ar­hnapp.

Í heild­ina voru 67 pró­sent kvenna sem komu í Kvenna­at­hvarfið á árinu íslenskar, eða 74 pró­sent þeirra sem komu í við­töl og 51 pró­sent dval­arkvenna, og voru 74 pró­sent kvenn­anna af höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Kon­urnar voru á aldr­inum 18 til 81 árs en börnin frá nokk­urra daga gömlum upp í 16 ára.

Tafla: Kvennaathvarfið

Fram kemur hjá Kvenna­at­hvarf­inu að í 95 pró­sent til­vika hafi sá sem beitti ofbeldi verið karl­mað­ur, 72 pró­sent af íslenskum upp­runa og á aldr­inum 18 til 83 ára.

Hér að neðan má sjá mynd­band sem Kvenna­at­hvarfið lét gera árið 2016 en því er ætlað að vera fræðslu­mynd­band fyrir börn um heim­il­is­of­beld­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent