Vísindasiðanefnd og Persónuvernd segja í sameiginlegri yfirlýsingu að sú skimun sem Íslensk erfðagreining ætlaði að skima fyrir sé „hvorki leyfisskyld hjá Vísindasiðanefnd né Persónuvernd og getur því farið fram án aðkomu þessara aðila.“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hafði áður sagt að hann væri hættur við að skima eftir veirunni vegna aðfinnslna Vísindasiðanefndar og Persónuverndar.
Í yfirlýsingunni segir að Persónuvernd hafi síðdegis í gær borist erindi frá Íslenskri erfðagreiningu þar sem fram kom að fyrirtækið hefði boðist til þess að aðstoða heilbrigðiskerfið við að öðlast betri skilning á því hvernig Covid19-veiran hagar sér. „Út frá efni erindisins vöknuðu spurningar um hvort hluti verkefnisins fæli í sér vísindarannsókn á heilbrigðissviði sem væri leyfisskyld hjá Vísindasiðanefnd. Var Íslensk erfðagreining upplýst um það og boðin flýtimeðferð.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir er ætlun fyrirtækisins að skima fyrir Covid19-veirunni og skoða veiruna nánar. Slík skimun og veirurannsókn er hvorki leyfisskyld hjá Vísindasiðanefnd né Persónuvernd og getur því farið fram án aðkomu þessara aðila.“
Kári Stefánsson sagði í gær að ekkert yrði af því að fyrirtækið skimi fyrir nýju kórónuveirunni meðal almennings en Alma Möller landlæknir hafði grein frá því á blaðamannafundi á föstudag að Kári hefði boðið fram aðstoð sína og fyrirtækisins. Sagði hún að eftir ætti að útfæra málið.
„Við buðumst til þess að hlaupa undir bagga með heilbrigðiskerfinu og skima fyrir veirunni og raðgreina hana þar sem hún finnst þannig að það væri vitað hvar hún er og í hvaða formi. Það leit út fyrir að boð okkar væri þegið. Nú kemur í ljós að Vísindasiðanefnd/Persónuvernd líta svo á að þessi tilraun okkar til þess að taka þátt í aðgerðum heilbrigðiskerfisins beri að líta á sem vísindarannsókn og við yrðum að sækja um leyfi til þeirra.
Það munum við ekki gera vegna þess að af okkar hálfu átti þetta að vera þátttaka í klínískri vinnu en ekki vísindarannsókn. Þess vegna verður ekkert af okkar framlagi að þessu sinni. Þetta er endanleg ákvörðun.“
Í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu Íslenskrar erfðagreiningar sem sett var inn í gærkvöldi segir að fyrirtækið ætlaði aldrei að setja sýni sem hefði verið aflað vegna COViD 19 í lífssýnabanka fyrirtækisins enda hefði það ekki verið í samræmi við lög. „Einungis var boðin fram klínísk aðstoð við að taka og greina sýni úr fólki sem er með einkenni sem gætu bent til veirusýkingar. Raðgreining á sýnunum átti að leiða í ljós hvort þau væru að stökkbreytast. Íslensk erfðagreining greinir nú þegar um eittþúsund sýni á ári frá Landspítalanum þar sem grunur leikur á sjaldgæfum erfðasjúkdómum eða veikindi eru af óþekktum orsökum. Sú samvinna hefur ekki verið leyfisskyld.“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra blandaði sér í málið í gærkvöldi og sagði að hún, landlæknir og sóttvarnarlæknir væru sammála um að tilboð Íslenskrar erfðagreiningar um að skima fyrir nýju kórónuveirunni meðal almennings, við þær fordæmalausu aðstæður séu uppi, væri mikilvægt framlag til lýðheilsu og sóttvarna. „Við viljum leggja okkar af mörkum til að af framlagi ÍE geti orðið og trúum því að það geti gerst hratt.“
Fimmtíu manns höfðu greinst með veiruna á Íslandi um hádegisbil í gær. Meðal hinna smituðu er eins árs gamalt barn. Á fjórða hundrað manns eru í sóttkví.