Brottvísun frestað á ný

Búið er að fresta brottvísun ungu flóttabarnanna Ali, Kayan, Saja og Jadin og foreldra þeirra frá Írak til Grikklands um óákveðinn tíma.

Ali, Kayan, Saja og Jadin
Ali, Kayan, Saja og Jadin
Auglýsing

Búið er að fresta brott­vísun ungu flótta­barn­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldra þeirra frá Írak til Grikk­lands um óákveð­inn tíma. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Semu Erlu Serdar, ­stofn­anda Sol­­aris – hjálp­­­ar­­sam­­taka fyrir hæl­­is­­leit­endur og flótta­­fólk á Íslandi, á Face­­book-­­síðu hennar nú rétt í þessu. 

Hún segir að sú skýr­ing sem gefin hafi verið á því sé að brott­vís­unin strandi á grískum stjórn­völdum sem seg­ist ekki geta tekið á móti þeim vegna aðstæðna þar.

Kjarn­inn greindi frá því í morgun að kæru­nefnd útlend­inga­mála hefði hafnað beiðni um end­ur­upp­töku á máli fjöl­skyld­unn­ar.

„Það þurfti sem­sagt grísk stjórn­völd til þess að stöðva ómann­úð­lega og grimmi­lega með­ferð íslenskra yfir­valda á börnum á flótta, sem voru búin að leigja einka­flug­vél undir þau, svo það sé alveg á hreinu! Börnin eru óhult í bili, en ég neita að trúa því að þeim verði til­kynnt um brott­vísun í þriðja skipt­ið,“ skrifar Sema Erla og bætir því við að slíkt ofbeldi muni aldrei líð­ast.

Auglýsing

Þá telur hún að við þurfum öll að halda áfram að fylgj­ast mjög vel með stöðu mála og passa upp á að íslensk yfir­völd reyni ekki „að fram­kvæma for­kast­an­legar aðgerðir eins og þá sem stóð til að gera í þessu til­felli í skjóli næt­ur.“

Það er búið að fresta brott­vísun ungu flótta­barn­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og ungra for­eldra þeirra frá Írak til­...

Posted by Sema Erla Serdar on Tues­day, March 10, 2020

Yfir­lýs­ing frá Útlend­inga­stofnun barst fjöl­miðlum klukkan 14:30.

Að gefnu til­efni vill Útlend­inga­stofnun koma því á fram­færi að grísk stjórn­völd hafa ekki hafnað því að taka við ein­stak­lingum sem hafa fengið alþjóð­leg vernd í Grikk­landi.

Stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra und­ir­býr nú ferð til Grikk­lands með fjöl­skyldu og ein­stak­ling, sem var synjað um efn­is­lega með­ferð umsókna þeirra um alþjóð­lega vernd hér á landi vegna þess að þau njóta nú þegar alþjóð­legrar verndar í Grikk­land­i. 

Ferðin var á áætlun í þess­ari viku en hlut­að­eig­andi hefur verið til­kynnt að hún muni frest­ast. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stoð­deild er ástæðan sú að boð­leiðum fyrir end­ur­send­ing­ar­beiðnir í grísku stjórn­sýsl­unni hefur verið breytt og því liggur ekki fyrir sam­þykki frá réttu stjórn­valdi. End­ur­send­ing­ar­beiðni hefur nú þegar verið send þar til bæru stjórn­valdi til afgreiðslu.

Það er því ekki rétt að grísk stjórn­völd hafi hafnað því að taka aftur við ein­stak­lingum sem hafa fengið alþjóð­leg vernd í Grikk­landi vegna aðstæðna þar í landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent